Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd
Dagskrá
1.Möðruvelli hitaveita DSK L223473
2511002
Tekin fyrir eftir auglýsingu breyting á deiliskipulagi athafnasvæðis í landi Möðruvalla. Tillagan var auglýst með athugasemdafresti til 20. apríl 2026. Þrjár umsagnir/athugasemdir bárust á auglýsingatíma frá Veitum, Vegagerðinni og Minjastofnun Íslands.
Nefndin hefur farið yfir framkomnar umsagnir. Minjastofnun Íslands fer framá að fornleifaskráning fyrir svæðið verði uppfærð og að minjar ásamt friðhelgunarsvæðum séu sýndar á uppdrætti áður en endanleg umsögn er veitt. Þá gerir Vegagerðin kröfu um að veghelgunarsvæði séu sýnd réttilega og að skilmálar um sameiginlegar vegtengingar og takmörkun á notkun tengingar við A4 komi fram í skipulagsgögnum. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs. gerir ekki athugasemdir.
Nefndin telur breytinguna mikilvæga fyrir rekstraröryggi hitaveitunnar en telur nauðsynlegt að mæta framkomnum athugasemdum áður en tillagan er afgreidd til fullnaðarsamþykktar hjá sveitarstjórn.

2.Nýtt deiliskipulag fyrir Álfakot L224886 - Álfagarður
2603020
Fyrir liggur tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir íbúðarbyggð í landi Álfakots. Tillagan nær til 7,9 ha svæðis og gerir ráð fyrir sex nýjum íbúðarlóðum. Deiliskipulag þetta byggir á forsendum endurskoðað aðalskipulags sem er nú í auglýsingu. Málið var áður á dagskrá 31. fundar nefndarinnar en málinu var frestað þar sem ekki lágu fyrir upplýsingar um í hvaða landi aðkomuvegur liggur.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði samþykkt til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt skal þess gætt að lokaafgreiðsla og gildistaka deiliskipulagsins falli saman við eða fylgi í kjölfar staðfestingar á nýju Aðalskipulagi Kjósarhrepps 2024 - 2036. Auk þess liggi fyrir þinglýstur samningur samkvæmt kvöð um aðkomu um Eyrarkotsveg.
3.Breyting á deiliskipulagi Miðbúð 3 L210761
2603021
Fyrir liggur tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina Miðbúð 3 L210761. Breytingin felst í stækkun byggingarreits og aukningu á leyfilegu byggingarmagni í allt að 215 m².
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd hafnar umsókninni þar sem hún samræmist ekki núgildandi aðalskipulagi né nýju aðalskipulagi sem bíður staðfestingar og felur verkefnastjóra að ræða við umsækjanda.
4.Eyjatún 27, L211783 - Deiliskipulagsbreyting vegna stækunar lóðar.
2604023
Lögð er fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi Eyjar I. Breytingin felur í sér stækkun lóðarinnar Eyjatún 27, ásamt stækkun byggingarreits. Það land sem lagt er til við lóðina kemur úr jörðinni Eyjum I. Núverandi stærð lóðarinnar er 1.512 m² en samkvæmt fyrirliggjandi tillögu verður hún 15.218,9 m². Erindið er framhald af máli nr. 2511018 þar sem áður var óskað eftir breytingu á deiliskipulagi vegna stækkunar lóðarinnar.
Skipulags-, umhverfis og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan hljóti málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndakynna þarf fyrir lóðunum L215924, L232639, L232640, L173144.
5.Eyjavík 6, L198314 - Umsókn um breytingu á skráningu lóðar
2604011
Lögð er fram umsókn Kristrúnar Bragadóttur, eiganda að Eyjavík 6, 12 og 16 í landi Eyja II, um sameiningu framangreindra lóða í eina lóð, Eyjavík 6, landeignanúmer L198314. Aðkoma að lóð er frá Meðalfellsvegi.
Í gildi er deiliskipulag fyrir svæði A í landi Eyja II, samþykkt þann 10.08.1988. Samkvæmt Aðalskipulagi Kjósarhrepps er umrætt svæði skilgreint sem landbúnaðarsvæði.
Á lóðinni Eyjavík 12 er skráð mannvirki, mhl. nr. 010101, sumarbústaður að stærð 86,7 m². Umrætt mannvirki er ekki staðsett innan viðkomandi landeignar og er lagt til að það verði fellt út úr mannvirkjaskrá.
Skráð stærð Eyjavíkur 6 er 2.300 m², Eyjavík 12 er skráð 1.400 m², en engin stærð er skráð fyrir Eyjavík 16. Samkvæmt fyrirliggjandi hnitsetningu verður sameinuð lóð 5.767,9 m².
Fyrir liggur merkjalýsing sem lögð er til grundvallar sameiningu lóðanna. Landeignin liggur að Eyjum II, L125987, og Eyjavík 4, L125993.

Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd bendir á að breyting á að stærð lóðarinnar kallar á breytingu á gildandi deiliskipulagi þar sem ekki er samræmi á milli nýrrar stærðar lóðarinnar og uppgefinnar stærðar í gildandi deiliskipulagi. Nefndin felur Verkefnastjóra að ræða við umsóknaraðila um gerð deiliskipulagsbreytingar.
Samþykkt með fyrirvara um breytingu á gildandi deiliskipulagi svæðisins.
Samþykkt með fyrirvara um breytingu á gildandi deiliskipulagi svæðisins.
6.Brekkur 8 L126448 - Umsókn um breytingu á DSK
2604018
Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Brekkna vegna lóðarinnar Brekkur 8 (L126448). Í breytingunni felst að skilgreindur er nýr byggingarreitur fyrir aukahús (bílskúr) á lóðinni. Jafnframt er hámarksbyggingar-magn á lóðinni aukið úr 69 m² í 140 m². Breytingin er í samræmi við gildandi aðalskipulag Kjósarhrepps 2017-2029, þar sem lóðinni var breytt úr frístundalóð í íbúðarlóð (svæði ÍB5b) árið 2022. Fyrir liggur hættumat frá Veðurstofu Íslands sem staðfestir að byggingarreitir lóðarinnar eru utan hættusvæðis vegna grjóthruns.
Þar sem nýr byggingarreitur er staðsettur innan við 100 metra frá miðlínu Meðalfellsvegar (461), felur tillagan í sér að óskað verður eftir undanþágu hjá ráðherra frá ákvæði d-liðar gr. 5.3.2.5. í skipulagsreglugerð nr. 90/2013.

Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við seitarstjórn að tillagan verði grenndarkynnt í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynnt verður fyrir Vegagerðinni og Brekkum 2 L204482.
7.Vindáshlíð, L126485 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 3
2604021
Lögð er fram umsókn KFUM og KFUK á Íslandi um byggingarheimild vegna breytinga á íþróttahúsi við Vindáshlíð.
Breytingarnar eru að mestu leyti innanhúss, auk breytinga á gluggum og hurðum. Ekki er um að ræða stækkun mannvirkis og engar breytingar eru fyrirhugaðar á íþróttasal. Erindið varðar því breytingar á fyrirliggjandi mannvirki án aukins byggingarmagns.

Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd samþykkir breytinguna í samræmi við grein 2.3.4 í byggingarreglugerð 112/2012 og og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarheimild þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist, sbr. 2.3.8. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012
8.Hlíð 10 , L126202 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1
2604019
Lögð er fram umsókn Þorsteins Þórhallssonar um byggingarheimild fyrir 42,6 m2 gestahúsi í notkunarflokki 3. Lóðin er 4215 m2 fyrir 49,8 m2 sumarhús. Heildarbyggingarmagn verður því 92,4 m2 eða 0,02. Ekki er deiliskipulag á svæðinu.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir umsóknina með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda skv. 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Byggingarfulltrúa falið að veita byggingarheimild þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist, sbr. 2.3.8. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012. Grenndarkynnt verður fyrir Hlíð 9 L126211, hlíð 11 L126203 og Hlíð 10A L126353.
9.Stekkur 1, L206589 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1
2604009
Lögð er fyrir umsókn Lilju Oddsdóttur um byggingarheimild fyrir þegar byggðu 21,1 m2 gestahúsi sem flytja á á lóðina Stekkur 1. Engin bygging er skráð á lóðina samkvæmt skrá HMS. Lóðin er 10.071 m2 frístundalóð á ódeiliskipulögðu svæði.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir umsóknina með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda skv. 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Byggingarfulltrúa falið að veita byggingarheimild þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist, sbr. 2.3.8. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012. Grenndarkynnt verður fyrir Stekkjarflöt L237502, Neðri Háls 2 L237501 og Bollastaði L207158.
10.Svæðisskipulagsnefnd fundur 144
2604002
Fundi slitið - kl. 17:00.
Lagfæra skipulagsuppdrátt til samræmis við kröfur Vegagerðarinnar sem og uppfæra fornleifaskráningu og færa nýjar upplýsingar inn á skipulagsuppdrátt í samræmi við kröfur Minjastofnunar.
Verkefnastjóra er falið að fylgja málinu eftir.