Fara í efni

Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd

33. fundur 28. maí 2026 kl. 16:00 - 17:00 stóra fundarsal í Ásgarði
Nefndarmenn
  • Elís Guðmundsson formaður
  • Petra Marteinsdóttir nefndarmaður
  • Guðmundur H Davíðsson nefndarmaður
  • Þorbjörg Skúladóttir varamaður
    Aðalmaður: Magnús Ingi Kristmannsson
Starfsmenn
  • Þorbjörg Gísladóttir Sveitarstjóri
  • Óskar Örn Gunnarsson
  • Olgeir Olgeirsson
Fundargerð ritaði: Olgeir Olgeirsson Verkefnastjóri Skipulags- og Byggingarsviðs
Dagskrá

1.Miðbúð 3 L210761 - Deiliskipulag breyting

2605024

Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Eyri í Kjósarhreppi, dags. 21. maí 2026. Breytingin tekur til lóðanna Miðbúð 1 - 7 og felur í sér viðbót við byggingarskilmála í greinargerð deiliskipulagsins, nánar tiltekið nýjan kafla 4.6 um íbúðarhús. Skipulagsuppdráttur helst óbreyttur og breytingin er sett fram til samræmis við byggingarheimildir í Aðalskipulagi Kjósarhrepps 2024?2036.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd telur að breytingin sé óveruleg í skilningi 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, enda felur hún ekki í sér breytta landnotkun, breytt lóðamörk, breytingu á nýtingarhlutfalli eða breytingu á skipulagsuppdrætti. Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði grenndarkynnt þeim sem taldir eru eiga hagsmuna að gæta í samræmi við ákvæði skipulagslaga.

2.Umsókn um breytingu á skráningu lóðar Miðbúð 3 og 4

2605025

Tekin er fyrir umsókn um breytingu á skráningu lóðanna Miðbúð 3 og Miðbúð 4 úr frístundalóðum í íbúðarlóðir.

Fyrir liggur að gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið var breytt með samþykkt sveitarstjórnar þann 29.11.2012, þar sem notkun lóðanna Miðbúð nr. 1-7 var breytt úr frístundalóðum í íbúðarlóðir. Samhliða þeirri breytingu var gerð breyting á aðalskipulagi Kjósarhrepps og svæðið skilgreint sem ÍB1.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytingu á skráningu lóðanna Miðbúð 3 og Miðbúð 4 úr frístundalóðum í íbúðarlóðir, enda er breytingin í samræmi við gildandi deiliskipulag og aðalskipulag Kjósarhrepps. Nefndin leggur jafnframt til að sveitarstjóra, skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa verði falið að annast nauðsynlega eftirfylgni gagnvart HMS, Fasteignaskrá og öðrum hlutaðeigandi aðilum.

3.Breyting á deiliskipulagi Brekkur 1 og 2

2605026

Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Brekkna, dags. 25. maí 2026. Breytingin tekur til lóðanna Brekkur 1, L204481, og Brekkur 2, L204482. Í breytingunni felst að byggingarheimildir á lóðunum eru auknar þannig að heimilt byggingarmagn verði allt að 250 m² á hvorri lóð. Aðrar lóðir innan skipulagssvæðisins halda óbreyttu byggingarmagni og aðrir skilmálar deiliskipulagsins haldast óbreyttir. Í gildandi skilmálum miðast byggingarmagn lóða við nýtingarhlutfall 0,03, þó með hámarksbyggingarmagni 200 m². Með breytingunni er gerð undanþága frá almennu hámarksbyggingarmagni fyrir lóðir nr. 1 og 2, sem heimilar allt að 250 m² byggingarmagn á hvorri lóð. Lóðirnar eru íbúðarhúsalóðir ÍB5b samkvæmt breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar brekkna sem samþykkt var í hreppsnefnd þann 06.09.2022.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd telur að um óverulega breytingu á deiliskipulagi sé að ræða, þar sem breytingin tekur aðeins til tveggja þegar skilgreindra íbúðarhúsalóða innan gildandi deiliskipulags. Breytingin felur ekki í sér breytingu á afmörkun skipulagssvæðis, landnotkun, fjölda lóða, aðkomu eða meginforsendum skipulagsins. Þá eru aðrir byggingarskilmálar óbreyttir.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn Kjósarhrepps að samþykkja að tillagan verði grenndarkynnt þeim sem taldir eru eiga hagsmuna að gæta, í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

4.Hvammur 8, L126122 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2604028

Lögð er fyrir umsókn Sigurkarls Magnússonar, dags. 29.04.2026, um fyrirhuguð byggingaráform á 150,0 m2 frístundahúsi mhl. 01 á lóðinni Hvammur 8, L126122 á grunni þess húss sem fyrir stóð á lóðinni og varð fyrir altjóni í bruna í mars 2026. Skráð stærð lóðar er 5000 m2 og yrði nýtingarhlutfall 0,03. Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd samþykkir umsóknina og er sammála um að falla frá grenndarkynningu sbr. 3.mgr.44.gr Skipulagslaga 123/2010, enda liggi allar meginforsendur fyrir í aðalskipulagi. Byggingarfulltrúa falið að veita byggingarheimild þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist , sbr. 2.3.8. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012.

5.Í landi Morastaða, L126377 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2605023

Lögð er fyrir umsókn Moniku Rögnvaldsdóttir dags. 26.05.2026 um fyrirhuguð byggingaráform á 188,8 m2 frístundahúsi mhl 01 á lóðinni Í landi Morastaða L126377. Stærð lóðar er 10.000 m2. Fyrir er 27 m2 sumarhús sem áformað er að breytt verið í gestahús eða rifið. Nýtingarhlutfall yrði 0,02. Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd samþykkir umsóknina með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda skv. 2.mgr. 44.gr. skipulagslaga. Byggingarfulltrúa falið að veita byggingarheimild þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist , sbr. 2.3.8. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 og breyting hefur gengið í gegn á fyrirliggjandi sumarhúsi. Nefndin er sammála um að grenndarkynna fyrir eigendum að Eyrarhlíð L213911, Morastöðum 4 L213910, Spilda úr landi Morastaða 1 L214942 og Morastaða L126374.

6.Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa varnir við Meðalfellsvatn

2605014

Lagt er til kynningar mál Björns Inga Knútssonar fyrirhugaða bakkavörn við Meðalfellsvatn þar sem verulegt landbrot hefur átt sér stað. Erindi var vísað til umsagnar hjá Fiskistofu, Veiðifélags Kjósarhrepps og vatnalífræðingi hjá Hafrannsóknarstofnun (Haf og vatn).
Nefndin tekur vel í erindið en bendir á að framkvæmd skal gerð í samráði við landeiganda upprunalands og aðgengi meðfram vatni haldist óhindrað.

7.Svæðisskipulagsnefnd fundur 146

2605015

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:00.