Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd
Dagskrá
1.Kosning formanns og varaformanns.
2606006
2.Erindisbréf nefnda.
2606001
Erindirbréf Skipulags- umhverfis- og samgöngunefndar lögð fram til staðfestingar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
3.DSK Sandslundur 16,26 og Sandstangi
2509028
Lagt er fram að nýju uppfært deiliskipulag fyrir Sandslund 16, 26 og Sandstanga, sem áður var til umfjöllunar á fundi nefndarinnar þann 29.01.2026. Með hliðsjón af þeim athugasemdum sem þá voru gerðar, hefur hönnuður nú breytt tillögunni og tekið tillit til ábendinga nefndarinnar er varða útfærslu á lóðinni Sóltún 1.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði samþykkt og fái lokaafgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
4.Eyjatún 27, L211783 - Deiliskipulagsbreyting vegna stækkunar lóðar.
2604023
Tekin er fyrir breyting á deiliskipulagi fyrir lóðina Eyjatún 27, en tillagan var grenndarkynnt í samræmi við samþykkt nefndarinnar frá 30.04.2026, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tvær athugasemdir bárust á kynningartíma.
Nefndin hefur yfirfarið framkomnar athugasemdir. Þar sem ekki eru færð fram efnisleg rök eða upplýsingar sem sýna fram á að breytingin hafi neikvæð áhrif á lögvarða hagsmuni athugasemdaraðila eða að hún fari gegn markmiðum skipulagslaga gefa athugasemdirnar ekki tilefni til breytinga á tillögunni.

Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt og henni fylgt eftir í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
5.Eyjavík 6, L198314 - Umsókn um breytingu á skráningu lóðar
2604011
Tekin er fyrir tillaga að breytingu á deiliskipulagi ásamt merkjalýsingu er lýtur að sameiningu lóðanna Eyjavíkur 6, 12 og 16 í eina 5.767,9 m² lóð undir heitinu Eyjavík 6 (L198314). Tillagan hefur verið grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum aðliggjandi lóða í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og bárust engar athugasemdir.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt skv. 3. mgr. 43. gr. laganna, með fyrirvara um endanlegt samþykki landeiganda á merkjalýsingu.
6.Brekkur 8 L126448 - Umsókn um breytingu á DSK
2604018
Tekin er fyrir að nýju breyting á deiliskipulagi fyrir Brekkur 8 eftir grenndarkynningu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin hefur yfirfarið þær umsagnir sem bárust og gefa þær ekki tilefni til breytinga á deiliskipulagsuppdrætti dags. 24.04.2026.
Umsögn Vegagerðarinnar var tekin til sérstakrar skoðunar. Þar sem fyrirhuguð bygging er frístandandi bílskúr en ekki íbúðar- eða sumarhús, telur nefndin ekki tilefni til breytinga á uppdrætti. Líkt og fram kom á 32. fundi nefndarinnar er gildi þessarar deiliskipulagsbreytingar háð undanþágu umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra frá d-lið gr. 5.3.2.5. í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 (vegna byggingarlínu við þjóðvegi).

Nefndin leggur til við sveitarstjórn að heimilað verði að sótt verði um ofangreinda undanþágu til ráðuneytisins og felur verkefnastjóra eftirfylgni málsins. Í umsögn frá Vegagerð kemur fram að Vegagerðin muni ekki taka þátt í kostnaði vegna þeirra óþæginda sem af nálægð við veginn hlýst, svo sem vegna hávaða eða ryks.
Nefndin leggur jafnframt til við sveitarstjórn að tillagan verði samþykkt og send til birtingar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga, að fenginni undanþágu ráðherra.
Nefndin leggur jafnframt til við sveitarstjórn að tillagan verði samþykkt og send til birtingar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga, að fenginni undanþágu ráðherra.
7.Langás 7, Umsókn um stofnun lóða
2606007
Lögð er fyrir umsókn Adam Hoffritz fyrir hönd landeiganda um stofnun nýrrar lóðar úr landi Neðra-Háls L126452. Nýja lóðin mun heita Langás 7. Lóðin verður 3500,2 m2. Aðkoma verður frá Langásvegi. Engin mannvirki verða á nýrri landeign við stofnun hennar. Á svæðinu er í gildi deiliskipulag fyrir sumarhúsabyggð í landi Neðra-Háls frá 1995. Nýja lóðin, Langás 7, er líklega á mörkum þess svæðis sem er merkt sem Langás 5 annars vegar og Ú2 hins vegar þar sem gert er ráð fyrir frístundalóð og er byggingareitur á lóðinni.
Skipulags- umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir samhljóða og leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lóðarinnar með fyrirvara um samþykki þinglýsts eiganda upprunalands.
Skipulags- umhverfis- og samgöngunefnd mælist til þess að farið verði í heildar endurskoðun á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið.
Skipulags- umhverfis- og samgöngunefnd mælist til þess að farið verði í heildar endurskoðun á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið.
8.Hlíð 39, L126248 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2
2606003
Lögð er fyrir umsókn Andrea Fiocca um byggingarheimild dags. 04.06.26 á 15,4 m2 viðbyggingu mhl. 01 við 41,8 m2 sumarbústað sem og byggingarheimild fyrir 20,0 m2 nýbyggingu mhl. 02. Lóðin Hlíð 39 L126248 er 5213 m2 og er því byggingarmagn innan heimilda aðalskipulags og nýtingarhlutfall 0,01.
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd samþykkir umsóknina og er sammála um að falla frá grenndarkynningu sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, enda liggi allar meginforsendur fyrir í aðalskipulagi. Byggingarfulltrúa falið að veita byggingarheimild þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist, sbr. 2.3.8. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
9.Hamrar, L126210 Niðurrif - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1
2606013
Lögð er fram byggingarleyfisumsókn Einbúa fasteignum ehf. vegna byggingar 134,0 m² frístundahúss mhl 01 og annarsvegar heimildar til niðurrifs 40,8 m² frístundahúss sem byggt var árið 1978 á lóðinni Hamrar 12, L126210. Lóðin er skráð 3.515 m² að stærð. Veðbókarvottorð fyrir niðurrifi hefur verið lagt fram. Vegna lögunar lóðarinnar, sem er um 35 m á breidd, reynist erfitt að uppfylla kröfu um 10 m fjarlægð frá lóðarmörkum beggja megin.
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd samþykkir umsóknina með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda skv. 2.mgr. 44.gr. skipulagslaga. Byggingarfulltrúa falið að veita byggingarheimild þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist , sbr. 2.3.8. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
Nefndin er sammála um að grenndarkynna fyrir eigendum Hamrar 14 L126233, Hamrar 13 L126232 og Hamrar 11 L126209, sem og Meðalfelli L221431.
Nefndin er sammála um að grenndarkynna fyrir eigendum Hamrar 14 L126233, Hamrar 13 L126232 og Hamrar 11 L126209, sem og Meðalfelli L221431.
10.Baulubrekka, L205213 - Skemma, Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1
2606009
Lögð er fyrir byggingarleyfisumsókn Hálstaks ehf. á þegar byggðri 112,2 m2 tækjageymslu á lóðinni Baulubrekka L205213. Fyrir er á lóðinni 178,7 m2 íbúðarhús er heildarbyggingarmagn því 290,9 m2. Hámarksbyggingarmagn lóðar samkvæmt deiliskipulagi er 350 m2.
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd vekur athygli á því að byggingarfulltrúa er heimilt að leggja stjórnvaldssekt á framkvæmdir sem eru byggingarleyfisskyldar án þess að hafa fengið byggingarleyfi skv. 9. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.

Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd samþykkir umsóknina og er sammála um að falla frá grenndarkynningu sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, enda liggi allar meginforsendur fyrir í aðalskipulagi. Byggingarfulltrúa falið að veita byggingarleyfi þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist, sbr. 2.4.4. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
11.Eyjatún 18, L211596
2502011
Tekið er fyrir erindi byggingarfulltrúa vegna lóðarinnar Eyjatúns 18, L211596. Þrátt fyrir ítrekuð tilmæli hefur eigandi ekki brugðist við kröfu um að fjarlægja þær leifar byggingar sem standa enn eftir í kjölfar foktjóns árið 2023.
Byggingarfulltrúi óskar eftir samþykki nefndarinnar fyrir því að gripið verði til aðgerða við að fjarlægja leifar byggingarinnar á kostnað eiganda lóðarinnar, með vísan til 2.9.2. gr. byggingarreglugerðar.

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindi byggingarfulltrúa. Byggingarfulltrúa er heimilað að láta fjarlægja leifar byggingarinnar af lóðinni á kostnað eiganda, enda hafi eiganda áður verið veittur hæfilegur frestur til úrbóta og honum tilkynnt um fyrirhugaðar aðgerðir, í samræmi við ákvæði 2.9.2. gr. byggingarreglugerðar.
Fundi slitið - kl. 17:50.
Gerð er tillaga um að Elís Guðmundsson verði formaður Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd.
Gerð er tillaga um að Magnús Ingi Kristmannsson verði varaformaður Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd.
Tillagan er samþykkt samhljóma.