Fara í efni

Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd

35. fundur 03. september 2026 kl. 16:00 - 18:00 stóra fundarsal í Ásgarði
Nefndarmenn
  • Elís Guðmundsson formaður
  • Petra Marteinsdóttir nefndarmaður
  • Ernst Christoffel Verwijnen varamaður
    Aðalmaður: Guðmundur H Davíðsson
  • Magnús Ingi Kristmannsson nefndarmaður
  • Arngrímur Arngrímsson varamaður
    Aðalmaður: Brynja Laxdal
Starfsmenn
  • Óskar Örn Gunnarsson
  • Olgeir Olgeirsson
  • Jóhanna Hreinsdóttir (JH) Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Olgeir Olgeirsson Verkefnastjóri Skipulags- og Byggingarsviðs
Dagskrá

1.DSK Sandslundur 16,26 og Sandstangi

2509028

Lögð er fram að nýju tillaga að deiliskipulagi fyrir Sandslund 16, Sandslund 26 og Sandstanga að lokinni endurauglýsingu. Deiliskipulagið nær yfir lóðirnar Sandstanga L237218, Sandslund 16 L215846 og að hluta Sandslund 26 L215944. Innan skipulagssvæðisins er gert ráð fyrir samtals 14 lóðum á bilinu 3000 - 5141 m2.



Tillagan var áður auglýst frá 12. desember 2025 til 23. janúar 2026. Við yfirferð málsins kom í ljós að auglýsing tillögunnar hafði ekki birst í Lögbirtingablaðinu og var hún því auglýst að nýju í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Engar nýjar umsagnir eða athugasemdir bárust á endurauglýsingartíma.



Tillagan var áður tekin til afgreiðslu á fundi nefndarinnar þann 25. júní 2026, eftir að hönnuður hafði uppfært hana með hliðsjón af framkomnum athugasemdum og ábendingum nefndarinnar varðandi útfærslu lóðarinnar Sóltúns 1.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd staðfestir fyrri afstöðu sína frá 25. júní 2026 og leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt. Skipulagsfulltrúa verði falið að annast áframhaldandi málsmeðferð og gildistöku deiliskipulagsins í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

2.Miðbúð 3 L210761 - Deiliskipulag breyting

2605024

Lögð er fram að nýju tillaga, dags. 21. maí 2026, að breytingu á deiliskipulagi Eyrar í Kjósarhreppi að lokinni grenndarkynningu. Breytingin tekur til lóðanna Miðbúðar 1-7 og felur í sér viðbót við byggingarskilmála í greinargerð deiliskipulagsins, nánar tiltekið nýjan kafla 4.6 um íbúðarhús. Skipulagsuppdráttur helst óbreyttur.



Tillagan var grenndarkynnt frá 8. júní til og með 6. júlí 2026 í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að breyting á deiliskipulagi verði samþykkt. Skipulagsfulltrúa verði falið að senda samþykkta breytingu til HMS og annast birtingu auglýsingar um gildistöku hennar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

3.Breyting á deiliskipulagi Brekkur 1 og 2

2605026

Lögð er fram að nýju tillaga, dags. 25. maí 2026, að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Brekkna að lokinni grenndarkynningu. Breytingin tekur til lóðanna Brekkna 1, L204481, og Brekkna 2, L204482, og felur í sér að hámarksbyggingarmagn á hvorri lóð hækkar úr 200 m² í 250 m². Nýtingarhlutfallið 0,03 og aðrir skilmálar deiliskipulagsins haldast óbreyttir.



Tillagan var grenndarkynnt frá 8. júní til og með 6. júlí 2026 í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ein athugasemd barst frá eigendum Brekkna 3, L204483. Þar er auknu byggingarmagni mótmælt með vísan til umfangs mögulegrar uppbyggingar og áhrifa hennar á Brekkur 3. Jafnframt er gerð athugasemd við að Brekkur 1 og 2 njóti rýmri byggingarheimilda á meðan ósk um að Brekkur 3 verði breytt í íbúðarlóð hafi verið hafnað.



Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd hefur farið yfir athugasemdina. Nefndin bendir á að Brekkur 1 og 2 eru þegar skilgreindar sem íbúðarhúsalóðir á íbúðarsvæði ÍB5b samkvæmt gildandi skipulagsáætlunum, en Brekkur 3 er áfram frístundalóð. Lóðirnar eru því ekki í sömu skipulagslegu stöðu hvað varðar landnotkun og byggingarheimildir. Fyrirliggjandi breyting felur hvorki í sér stofnun lögbýla né breytingu á landnotkun lóðanna, heldur einungis hækkun á heimiluðu hámarksbyggingarmagni um 50 m² á hvorri lóð.



Byggingarreitir, nýtingarhlutfall, húsahæðir, aðkoma og aðrir skilmálar deiliskipulagsins haldast óbreyttir. Að mati nefndarinnar er aukning byggingarheimilda því ekki líkleg til að hafa slík áhrif á aðliggjandi lóðir að tilefni sé til að hafna breytingunni. Afstaða til hugsanlegrar breytingar á landnotkun eða skráningu Brekkna 3 verður ekki tekin í þessu máli, enda tekur deiliskipulagsbreytingin ekki til þeirrar lóðar. Slíkt erindi þarf að fá sjálfstæða málsmeðferð með hliðsjón af gildandi aðal- og deiliskipulagi.
Athugasemdin gefur samkvæmt framangreindu ekki tilefni til breytinga á tillögunni. Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt óbreytt. Skipulagsfulltrúa verði falið að tilkynna þeim sem gerðu athugasemd um niðurstöðu sveitarstjórnar, senda samþykkta breytingu til HMS og annast birtingu auglýsingar um gildistöku hennar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 43. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

4.Nýtt deiliskipulag fyrir Álfakot L224886 - Álfagarður

2603020

Lögð er fram uppfærð tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir íbúðarbyggð í landi Álfakots, L224886, dagsett 28. ágúst 2026, ásamt fyrirliggjandi umsögnum og viðbrögðum við þeim.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd frestar endanlegri afgreiðslu tillögunnar þar til fyrir liggja endanlegar upplýsingar frá Minjastofnun Íslands um staðsetningu og afmörkun minja og friðhelgunarsvæða þeirra, afstaða Heilbrigðiseftirlits Vesturlands til afmörkunar og skilmála brunnsvæðis, þinglýstur samningur um aðkomu um Eyrarkotsveg og snúningssvæði, auk staðfestingar á undanþágu frá ákvæðum d-liðar gr. 5.3.2.5 í skipulagsreglugerð vegna fjarlægðar byggingarreita frá Hvalfjarðarvegi.

Umsækjanda er falið að uppfæra skipulagsgögnin til samræmis við framangreint og leggja þau að nýju fyrir nefndina. Verði breytingar frá auglýstri tillögu taldar grundvallarbreytingar skal taka afstöðu til þess hvort auglýsa þurfi tillöguna að nýju.

5.Eyjavík 6, L198314 - Umsókn um breytingu á skráningu lóðar

2604011

Lögð er fram að nýju umsókn eigenda Eyjavíkur 6, L198314, um breytingu á skráningu og hnitsetningu lóðarinnar í kjölfar sameiningar landeigna. Málið var áður tekið fyrir á fundi Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefndar 25. júní 2026.

Jafnframt eru lögð fram erindi eigenda Eyjavíkur 4, þar á meðal fyrri tölvupóstur Jónasar Jónatanssonar og síðari tölvupóstur með athugasemdum við fyrirhugaða hnitsetningu og mælingu hinnar sameinuðu lóðar, sem og við orðalag fyrri bókunar nefndarinnar.

Málið er því tekið fyrir að nýju til að skýra hvort fyrirhuguð skráningarbreyting feli eingöngu í sér hnitsetningu fyrirliggjandi og óbreyttra marka eða hvort hún taki til marka sem óvissa eða ágreiningur er um. Jafnframt þarf að afmarka skýrt að afgreiðsla sveitarfélagsins felur ekki í sér úrlausn um einkaréttarlegan ágreining eða eignarrétt að landi.
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd frestar málinu og felur verkefnastjóra að ræða við umsækjanda um leiðréttingu á merkjalýsingu til samræmis við gildandi deiliskipulag.

6.Álfakot L224886 - Umsókn um framkvæmdarleyfi

2608017

Lögð er fram umsókn Lárusar Vilhjálmssonar og Ragnhildar Jónsdóttur, dags. 14. ágúst 2026, um framkvæmdaleyfi vegna borunar eftir neysluvatni í landi Álfakots L224886. Fyrirhuguð er um 40 m djúp borhola með 6 tommu fóðurröri og dælu. Borholunni er ætlað að þjóna núverandi íbúðarhúsi á Álfakoti 1 og fyrirhuguðum íbúðarhúsum á lóðum Álfakots 2-6.



Samkvæmt umsókn er borholan fyrirhuguð innan Álfakots 1, um 25 m frá Eyrarkotsvegi og um 10 m frá heimreið og íbúðarhúsi.



Nefndin bendir á að tillaga að deiliskipulagi Álfakots, mál nr. 2603020, er enn til meðferðar. Í auglýstri deiliskipulagstillögu er gert ráð fyrir að neysluvatn komi úr sameiginlegu vatnsbóli Eyri, Eyrarkots og Álfakots. Fyrirhuguð borhola felur því í sér breytingu á forsendum tillögunnar. Gera þarf grein fyrir borholunni, lagnaleiðum og vatnsverndarsvæðum í uppfærðu deiliskipulagi.
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd frestar málinu þar til liggur fyrir staðfestur deiliskipulagsuppráttur þar sem sýnt er staðsetning borholu, lagnasvæði og kvaðir.

7.Miðdalur L126371, Umsókn um stofnun lóða

2606020

Lögð er fyrir umsókn um stofnun nýrrar lóðar úr landi Miðdals L126371. Nýja lóðin mun heita Miðdalur 5 og verður íbúðarhúsalóð á 10.482,3 m². Aðkoma verður frá Eyrarfjallsvegi. Engin mannvirki verða á nýrri landeign við stofnun hennar. Um er að ræða staka framkvæmd á landbúnaðarlandi. Fyrir hafa verið stofnaðar tvær íbúðarhúsalóðir úr landi Miðdals. Kvöð er á Miðdal að hindra ekki aðkomu að miðdal 5.
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd gerir ekki athugasemd og leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lóðarinnar með fyrirvara um að fyrir liggi samþykki þinglýstra eiganda upprunalands og samþykki Vegagerðar er varðar tengingu inn á Eyrarfjallsveg 460.

8.Lækjarbær - Spilda úr landi Þúfu L210403, Umsókn um stofnun lóða

2606021

Lögð er fyrir umsókn um stofnun íbúðarhúsalóðar úr landi Þúfu (L126493). Hin nýja lóð mun bera heitið Lækjarbær og verður 22.536 m² að stærð. Aðkoma að lóðinni verður frá Eyrarfjallsvegi (460). Engin mannvirki verða innan lóðarinnar við stofnun hennar. Við afmörkun fyrirhugaðs byggingarreits hefur verið tekið tillit til landbúnaðarlands og er hann staðsettur á landi sem ekki telst gott ræktunarland.
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd gerir ekki athugasemd og leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lóðarinnar með fyrirvara um að fyrir liggi samþykki þinglýstra eiganda upprunalands.

9.Þúfa, L126493 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2

2608031

Lögð er fyrir byggingarleyfisumsókn vegna breytinga innanhúss á íbúðarhúsi Þúfu L126493. Búið er að ganga frá útisvæði, palli, heitum potti, útisturtu og eldstæði.Eigandi hefur hug á að sækja um gistileyfi í húsnæðinu. Því hefur upplýsingum um flóttaleiðir, brunavarnir og hjólastólaaðgengi verið bætt inn á teikningu.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlagða umsókn og teikningar að breytingum innanhúss og útisvæðis að Þúfu (L126493) með vísan til laga um mannvirki nr. 160/2010. Byggingarfulltrúa er falið að gefa út byggingarleyfi þegar lögboðnum skilyrðum er fullnægt, þ.m.t. skráningu ábyrgðaraðila og greiðslu tilskilinna gjalda.

10.Stóra Skál - L211010 - Umsókn um byggingarleyfi-Stóraskál 1

2305016

Tekin er fyrir að nýju umsókn um byggingarleyfi vegna breyttra byggingaráforma að Stóru-Skál, L211010. Umsóknin var áður tekin fyrir á fundi nefndarinnar 31. maí 2023 og afgreiðslu hennar frestað.



Samkvæmt uppdráttum sem bárust 11. ágúst 2026, dagsettum 11. maí 2023, er íbúðarhús, mhl. 01, 218,7 m² og bílskúr, mhl. 02, 104,0 m². Heildarbyggingarmagn samkvæmt uppdráttunum er því 322,7 m².



Áður samþykkt byggingaráform, sem Skipulags- og byggingarnefnd samþykkti 26. ágúst 2021 með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda, gerðu ráð fyrir 191,8 m² íbúðarhúsi, mhl. 01, og 80,0 m² bílskúr, mhl. 02, samtals 271,8 m². Grenndarkynning fór fram árið 2021 og bárust engar athugasemdir.



Breytingin frá áður samþykktum áformum er 50,9 m² samtals: íbúðarhúsið stækkar um 26,9 m² og bílskúrinn um 24,0 m².



Skráð stærð lóðarinnar er 2.000 m². Ósamræmi er hins vegar í framlögðum gögnum um stærð hennar, þar sem í greinargerð hönnuðar er hún tilgreind 5.910,0 m² en á afstöðumynd 4,6 ha.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd frestar málinu.

Eftirfarandi gögn þurfa berast áður en erindið er tekið fyrir aftur:

1.
Lagfæring hönnunargagna: Hönnuður leggi fram uppfærða afstöðumynd og greinargerð þar sem stærð, afmörkun og nýtingarhlutfall lóðarinnar eru samræmd og rétt fram sett.
2.
Lágmarksstærð lóðar skv. aðalskipulagi: Fyrir liggi staðfesting á að landeignin uppfylli nýtingarhlutfall íbúðarhúsalóða 0.05 samkvæmt gildandi aðalskipulagi með samþykktri merkjalýsingu og leiðréttingu í landskránigarkerfi HMS.

Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd vekur athygli á að byggingarfulltrúa er heimilt að leggja á stjórnvaldssekt á framkvæmdir sem eru byggingarleyfisskyldar án þess að hafa fengið byggingarleyfi skv. 9. gr. laga um mannvirki 160/2010.

11.Lyngholt, L213971 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2608004

Lögð er fram umsókn Níels Steinars Jónssonar um byggingarleyfi fyrir 82,2 m² geymsluhúsi, mhl. 03, á íbúðarhúsalóðinni Lyngholti, L213971. Lóðin er 5.300 m² að stærð. Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.



Fyrir eru á lóðinni 103,6 m² íbúðarhús, mhl. 01, og 25,3 m² bílskúr, mhl. 02. Heildarbyggingarmagn á lóðinni verður 211,1 m² og nýtingarhlutfall því 0,04.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlögð byggingaráform með fyrirvara um grenndarkynningu skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Byggingarfulltrúa er falið að grenndarkynna erindið fyrir aðliggjandi lóðarhöfum. Berist ekki athugasemdir innan tilskilins frests er byggingarfulltrúa heimilað að gefa út byggingarleyfi að uppfylltum skilyrðum laga um mannvirki nr. 160/2010.
Grenndarkynna þarf fyrir lóðunum Hálsakot L213972 og Þúfukot L126494.

12.Flekkudalsvegur Bátaskýli Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa

2608022

Óskað er eftir afstöðu nefndarinnar til endurbyggingar fjögurra samliggjandi bátaskýla. Gömlu skýlin hafa þegar verið rifin vegna mikils fúa og bágs ástands. Ástand þeirra var orðið þannig að hætta gat stafað af, meðal annars vegna mögulegs foks.



Fyrirhugað er að reisa ný skýli á sama stað og þau gömlu stóðu. Markmiðið er að endurgerðin verði eins nærri upprunalegu útliti skýlanna og unnt er og falli vel að þeim bátaskýlum sem enn standa á svæðinu.

Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd setur sig ekki upp á móti endurnýjun bátaskýlanna við Flekkudalsveg.
Nefndin tekur fram að endurnýjunin felur í sér mikla bót á öryggi svæðisins, þar sem eldri mannvirki voru orðin varasöm og hætta á foktjóni. Þá er framkvæmdin til mikillar prýði fyrir umhverfið og sveitarfélagið í heild, í samræmi við fyrri fordæmi sveitarfélagsins um endurbyggingu bátaskýla við Hjarðarholt.

13.10.000 m2 Hænsnabú á Tindastöðum í Miðdal

2608012

Lagt er fram erindi Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar þar sem óskað er umsagnar Kjósarhrepps um matsskyldu fyrirhugaðs hænsnabús Matfugls ehf. að Tindstöðum í Miðdal, sbr. mál nr. 0936/2026 í Skipulagsgátt. Jafnframt eru lögð fram drög að umsögn Kjósarhrepps, dags. 20. ágúst 2026.



Fyrirhuguð framkvæmd felur í sér allt að 10.000 m² uppbyggingu og eldisaðstöðu fyrir allt að 39.900 stofnfugla, auk fóðursílóa, þjónustu- og athafnasvæða og tengdra innviða. Aðkoma að framkvæmdarsvæðinu verður um Eyrarfjallsveg og brú yfir Kiðafellsá innan Kjósarhrepps.



Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd telur framkvæmdina líklega til að hafa umtalsverð umhverfisáhrif vegna umfangs, eðlis og staðsetningar hennar. Áhrifin verða að verulegu leyti innan Kjósarhrepps og taka meðal annars til íbúa og byggðar við Morastaði, umferðar og umferðaröryggis, burðarþols vegar og brúar, vetrarþjónustu, lyktar og loftgæða, hávaða, landslags og ásýndar, vatnsöflunar, frárennslis, meðhöndlunar húsdýraáburðar, útivistar og ferðaþjónustu.



Nefndin áréttar fyrri afstöðu Kjósarhrepps frá 6. mars 2024 og telur að fyrirliggjandi gögn hafi ekki sýnt fram á að framangreind áhrif verði óveruleg eða að fullnægjandi og bindandi lausnir liggi fyrir vegna innviða og þjónustu.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að fyrirliggjandi umsögn verði samþykkt og að þess verði krafist að framkvæmdin verði háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.

Jafnframt verði áréttað að ekki verði gert ráð fyrir þjónustu, tengingum, vetrarþjónustu eða kostnaðarþátttöku Kjósarhrepps nema að undangenginni sérstakri ákvörðun sveitarfélagsins og eftir atvikum skriflegu samkomulagi. Framkvæmdaraðili beri kostnað af þeim rannsóknum, innviðabótum, mótvægisaðgerðum og vöktun sem framkvæmdin kallar á, eftir því sem lög heimila.

14.Skipulagning áfangastaðarins Þórufoss í Kjós

2505032

Lögð er fram skipulagslýsing Sei ehf., dags. í ágúst 2026, vegna gerðar nýs deiliskipulags fyrir áfangastaðinn Þórufoss í Kjósarhreppi.



Skipulagssvæðið er um 2,5 ha og er innan afþreyingar- og ferðamannasvæðis AF5 samkvæmt Aðalskipulagi Kjósarhrepps 2017?2029. Markmið skipulagsgerðarinnar er að bæta aðgengi og öryggi ferðamanna, vernda náttúru og landslag og draga úr raski vegna aukinnar umferðar. Meðal annars er gert ráð fyrir bílastæðum fyrir fólksbíla, rútur og bíla með eftirvagna, gönguleiðum, dvalarsvæðum og útsýnisaðstöðu.



Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd tekur jákvætt í fyrirliggjandi skipulagslýsingu og leggur til við sveitarstjórn að hún verði samþykkt til kynningar samkvæmt 1. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með eftirfarandi lagfæringum:



*
Tilvísun til 30 m fjarlægðar frá ám og vötnum verði samræmd 50 m fjarlægðarviðmiði gr. 5.3.2.14 í skipulagsreglugerð nr. 90/2013. Verði fyrirhuguð mannvirki innan þeirra marka þarf að gera sérstaklega grein fyrir lagagrundvelli, nauðsyn, valkostum og umhverfisáhrifum.



*
Gerð verði skýr grein fyrir sérstakri vernd Þórufoss og nánasta umhverfis hans samkvæmt 61. gr. náttúruverndarlaga nr. 60/2013 og vernd bakkagróðurs samkvæmt 62. gr. sömu laga.



*
Umfjöllun um friðhelgun fornleifa verði samræmd lögum um menningarminjar nr. 80/2012.



*
Ekki verði fullyrt á þessu stigi að skipulagið hafi óveruleg umhverfisáhrif eða sé ekki háð umhverfismati. Í deiliskipulagsvinnunni verði lagt mat á áhrif á náttúru, landslag, ásýnd Þórufoss, vatnalíf og vatnshlot Laxár, bakkagróður, umferð, öryggi, aðgengi og menningarminjar.



*
Umfang fyrirhugaðra mannvirkja og aðstöðu verði skýrt nánar, meðal annars varðandi útsýnispalla, skjól, girðingar, lýsingu, skilti, úrgangsmál, yfirborðsvatn og eftir atvikum snyrtiaðstöðu.
Verkefnastjóra er falið að uppfæra lýsinguna í samráði við skipulagsráðgjafa áður en hún verður kynnt almenningi og send til umsagnar Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, Vegagerðarinnar, Náttúruverndarstofnunar, Náttúrufræðistofnunar, Minjastofnunar Íslands, Fiskistofu, Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, viðkomandi veiðifélags, landeiganda og annarra hagsmunaaðila eftir því sem við á.

15.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 13

16.Kerfisuppfærsla HMS - ONE

2607001

HMS hefur þróað sameiginlegt umsóknar- og umsýslukerfi fyrir byggingarleyfi sem sveitarfélög eiga að innleiða fyrir árslok 2026. Umsóknir til Kjósarhrepps munu berast í gegnum byggingarleyfi.hms.is en ábyrgð á leyfisveitingu og málsmeðferð verður áfram hjá sveitarfélaginu. Tengja þarf kerfið við málaskrárkerfi Kjósarhrepps og er virkur Straumur (X-Road) forsenda þeirrar tengingar. HMS ber kostnað af sameiginlega kerfinu en Kjósarhreppur af tengingu og nauðsynlegri aðlögun eigin kerfa.



Nauðsynlegar aðgerðir:



Kjósarhreppur þarf að undirbúa innleiðingu byggingarleyfakerfis HMS með því að tilnefna ábyrgðarmann og hafa samband við HMS um framkvæmd og tímasetningu. Staðfesta þarf að Straumur (X-Road) sé virkur og láta tengja nýja kerfið við málaskrárkerfi sveitarfélagsins.



Jafnframt þarf að ákveða hvernig gögn verða skráð og varðveitt, skilgreina aðganga starfsmanna og uppfæra verkferla. Áður en kerfið verður tekið í notkun þarf að prófa allt umsóknar- og afgreiðsluferlið, þjálfa starfsfólk og upplýsa umsækjendur um nýja umsóknarleið.



Að lokum þarf að ákveða gangsetningardag og fylgja fyrstu umsóknum sérstaklega eftir.

Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að hafinn verði undirbúningur að innleiðingu á nýju umsóknar- og umsýslukerfi HMS fyrir byggingarleyfi.

Verkefnastjóra er falið að hafa samband við HMS og þjónustuaðila málaskrárkerfis sveitarfélagsins, staðfesta stöðu Straums, X-Road, og afla kostnaðar- og tímaáætlunar vegna nauðsynlegra kerfistenginga og aðlögunar.

Jafnframt verði unnin innleiðingaráætlun sem taki til verkferla, skjalavörslu, aðgangsstýringar, prófana, fræðslu starfsfólks og upplýsingagjafar til umsækjenda. Miðað verði við að Kjósarhreppur geti tekið kerfið í notkun fyrir árslok 2026.

17.Svæðisskipulagsnefnd fundur 147

18.Erindi til sveitarstjórnar frá faghópi 3 í Rammaáætlun

2608030

Lagt fram til kynningar og nefndin áskilur sér rétt til umsagnar á síðari stigum.

Fundi slitið - kl. 18:00.