Fara í efni

Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd

36. fundur 02. október 2026 kl. 16:00 - 17:00 stóra fundarsal í Ásgarði
Nefndarmenn
  • Elís Guðmundsson formaður
  • Arngrímur Arngrímsson varamaður
    Aðalmaður: Petra Marteinsdóttir
  • Guðmundur H Davíðsson nefndarmaður
  • Magnús Ingi Kristmannsson nefndarmaður
  • Brynja Laxdal nefndarmaður
Starfsmenn
  • Óskar Örn Gunnarsson
  • Olgeir Olgeirsson
  • Jóhanna Hreinsdóttir (JH) Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Olgeir Olgeirsson Verkefnastjóri Skipulags- og Byggingarsviðs
Dagskrá

1.Merkjalýsing vegna stækkunar á Eystri-Hvilft 2 L206586

2609028

Lögð er fyrir umsókn um stækun lóðarinnar Eystri-Hvilft 2 L206586. Á svæðinu er í gildi deiliskipulag fyrir sumarhúsabyggð í landi Neðra-Háls frá 1995. Samkvæmt aðalskipulagi Kjósarhrepps er svæðið flokkað frístundasvæði. Deiliskipulagið er gamalt og óljóst.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt með fyrirvara um endanlega undirritaða merkjalýsingu / samþykki landeiganda.

Nefndin bendir jafnframt á að gildandi deiliskipulag svæðisins frá árinu 1995 er orðið gamalt og óljóst og telur brýnt að ráðist verði í heildstæða uppfærslu og endurskoðun á deiliskipulagi fyrir frístundasvæði F25 til samræmis við núgildandi skipulagsáætlanir.

2.Umsókn um stofnun lóða - tvær sumarhúsalóðir úr landi Meðalfells á Kotatúni

2609027

Lögð er fram fyrirspurn Dagnýjar Gísladóttur um stofnun tveggja nýrra frístundalóða úr landi Meðalfells á Kotatúni, sem hvor um sig verða um 5.000 m² að stærð (merktar A og B á uppdrætti). Nánari afmörkun og staðsetning kemur fram í meðfylgjandi gögnum. Svæðið er á ódeiliskipulögðu landbúnaðarlandi og flokkað sem svæði L2 í aðalskipulagi Kjósarhrepps 2024-2036.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd bendir á að samkvæmt Aðalskipulagi Kjósarhrepps 2024-2036 (kafla 4.2 og 5.1.1) er lögð rík áhersla á að varðveita gott ræktunarland í flokki L1 og L2 til matvælaframleiðslu og að frístundabyggð verði aðeins skipulögð utan slíks ræktunarlands. Þá kveða ákvæði aðalskipulags um landskipti (kafli 5.1.2) á um að landi í flokki L1 og L2 skuli almennt ekki ráðstafað með óafturkræfum hætti til annarra nota, svo sem til frístundabyggðar.

Með vísan til framangreindra ákvæða og stefnu aðalskipulags um vernd ræktunarlands í flokki L2 tekur nefndin neikvætt í erindið / hafnar fyrirspurninni.

Nefndin bendir jafnframt á að telji landeigandi að flokkun landsins sé ekki í samræmi við raunveruleg gæði þess er honum heimilt, sbr. kafla 5.1.1 í aðalskipulaginu, að afla óháðs sérfræðiálits á sviði landgæða til grundvallar endurmati sveitarstjórnar á flokkun landsins.
Fylgiskjöl:

3.Úrskurðarnefnd umhverfis og auðlindamála

2609029

Lögð er fram kæra eigenda Eyjavíkur 4 til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála (ÚUA), dags. 29. september 2026, vegna deiliskipulagsbreytingar og sameiningar lóðanna Eyjavíkur 6, 12 og 16. Laut kæran einkum að afmörkun suðurmarka lóðarinnar gagnvart Eyjavík 4 og meintu raski á vegstæði milli lóðanna.



Fyrir nefndinni liggur nú uppfærð og leiðrétt merkjalýsing, unnin í samræmi við athugasemdir kæranda, ásamt uppfærðum skipulagsuppdrætti þar sem tekið hefur verið fullt tillit til réttra lóðamarka og óbreytts vegstæðis. Jafnframt liggja fyrir drög að erindi til kæranda þar sem leitað er eftir formlegum sáttum í málinu. Með vísan til fyrri samskipta er þar óskað eftir staðfestingu kæranda á hinni leiðréttu afmörkun og boðaðri deiliskipulagsbreytingu, með það að markmiði að kæran til ÚUA verði afturkölluð samhliða lokaafgreiðslu málsins.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd fagnar því að fyrir liggi leiðrétt merkjalýsing og tillaga að breytingu á deiliskipulagi sem tekur tillit til athugasemda lóðarhafa Eyjavíkur 4 og tryggir óbreytt vegstæði. Nefndin felur starfsmanni að vinna áfram að sáttum á grundvelli framlagðra gagna og kalla eftir skriflegu samþykki hlutaðeigandi aðila.

Að fengnu samþykki nágranna og formlegri afturköllun kæru til ÚUA leggur nefndin til við sveitarstjórn að hin leiðrétta deiliskipulagsbreyting verði staðfest og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Náist ekki sátt í málinu eða dragist afturköllun kæru, leggur nefndin til við sveitarstjórn að fyrri samþykkt um deiliskipulagsbreytinguna verði formlega afturkölluð skv. 25. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ÚUA og málsaðilum tilkynnt um það, og hin uppfærða tillaga tekin til nýrrar lögmætrar málsmeðferðar og grenndarkynningar í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga.

4.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 14

2609004F

Fundi slitið - kl. 17:00.