Fara í efni

Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd

37. fundur 05. nóvember 2026 kl. 16:00 - 17:40 stóra fundarsal í Ásgarði
Nefndarmenn
  • Elís Guðmundsson formaður
  • Petra Marteinsdóttir nefndarmaður
  • Guðmundur H Davíðsson nefndarmaður
  • Magnús Ingi Kristmannsson nefndarmaður
  • Brynja Laxdal nefndarmaður
Starfsmenn
  • Óskar Örn Gunnarsson
  • Olgeir Olgeirsson
  • Jóhanna Hreinsdóttir (JH) Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Olgeir Olgeirsson Verkefnastjóri Skipulags- og Byggingarsviðs
Dagskrá
Formaður leitar frábrigða og óskar eftir að setja eftirfarandi mál á dagskrá fundarins:

Mál nr. 2611010 Ástand vega Eyrarfjallsvegur

1.Sandslundur 17, L215924 - Umsókn um deiliskipulag

2406047

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í Sandslundi 17 (L215924), dags. 14. október 2026.



Breytingin er lögð fram til að bregðast við athugasemd Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS), dags. 13. október 2026, vegna skörunar deiliskipulagssvæða Sandslundar 17 og Sandslundar 26.



Breytingin felst í því að afmörkun deiliskipulagssvæðis Sandslundar 17 er breytt þannig að það nær eingöngu til þeirra sex frístundalóða sem skilgreindar eru í gildandi deiliskipulagi. Jafnframt er götunafni og númerum lóðanna breytt í Sóltún 7, 9, 11, 13, 15 og 17 og aðkoma að lóðunum verður frá Sóltúni. Aðrir skilmálar gildandi deiliskipulags haldast óbreyttir.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd telur að breytingin sé óveruleg í skilningi 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, enda felur hún ekki í sér breytingar á landnotkun, byggingarheimildum eða nýtingarhlutfalli lóða. Breytingin miðar fyrst og fremst að því að samræma afmörkun aðliggjandi deiliskipulagssvæða og tryggja að þau skarist ekki.

Nefndin samþykkir að tillagan verði grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 43. gr., sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, fyrir þeim hagsmunaaðilum sem breytingin kann að varða og leggur til við sveitarstjórn að samþykkja þá málsmeðferð. Að lokinni grenndarkynningu verði málið tekið til endanlegrar afgreiðslu.

2.DSK Sandslundur 16,26 og Sandstangi

2509028

Lagt fram afgreiðslubréf Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS), dags. 13. október 2026, vegna deiliskipulags frístundabyggðar í Sandslundi 16, Sandstanga og Sandslundi 26, sem samþykkt var í sveitarstjórn þann 10. september 2026.



Í bréfi HMS er gerð athugasemd við að deiliskipulagssvæðið skarist við gildandi deiliskipulag Sandslundar 17, einkum hvað varðar aðkomuveg og vegtengingu. HMS telur því nauðsynlegt að breyta deiliskipulagi Sandslundar 17 samhliða til að tryggja að skipulagssvæðin skarist ekki, sbr. gr. 5.3.1 í skipulagsreglugerð nr. 90/2013.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd tekur undir athugasemd HMS og bendir á að fyrir liggi tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Sandslundar 17, sem er tekin fyrir sem sérstakt mál á fundinum.

Nefndin leggur til við sveitarstjórn að brugðist verði við athugasemd HMS með afgreiðslu framangreindrar deiliskipulagsbreytingar. Þegar breytingin hefur hlotið tilskilda málsmeðferð og tryggt hefur verið að afmörkun deiliskipulagssvæðanna skarist ekki, verði uppfærð gögn send HMS til yfirferðar svo unnt verði að ljúka gildistöku deiliskipulagsins.

3.Umsókn um breytingu á skráningu lóðar - Sandslundur 28a (L217636), Sandslundur 28 (L215946) og Sandslundur 15A (L220899)

2610021

Lagt fram erindi dags. 21. september 2026, fyrir hönd eigenda Sandslundar 15A (L220899), Sandslundar 28 (L215946) og Sandslundar 28A (L217636), þar sem óskað er eftir breytingu á Aðalskipulagi Kjósarhrepps 2024?2036 þannig að lóðirnar verði felldar inn í íbúðarsvæði ÍB16 Sandslundur.



Markmið breytingarinnar er að heimila íbúðarbyggð á lóðunum tveimur sem eru óbyggðar og breytta notkun núverandi frístundahúss á Sandslundi 28A í íbúðarhús til fastrar búsetu. Óskað er eftir að breytingin verði afgreidd sem óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd frestar málinu og leggur til að skipulag lóða verði skoðað nánar með tilliti til Aðalskipulags Kjósarhrepps.

4.Skipulagning áfangastaðarins Þórufoss í Kjós

2505032

Lagðar fram umsagnir sem bárust við kynningu skipulagslýsingar vegna fyrirhugaðs deiliskipulags fyrir Þórufoss í Kjósarhreppi, sbr. 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Alls bárust sex umsagnir, frá Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirliti Vesturlands, Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, Náttúrufræðistofnun, Minjastofnun Íslands og Náttúruverndarstofnun.



Í umsögnunum er meðal annars lögð áhersla á útfærslu aðkomu frá Kjósarskarðsvegi, veghelgunarsvæði, salernis- og fráveituaðstöðu, meðhöndlun ofanvatns, öryggi gesta og vernd náttúruverðmæta. Sérstaklega er bent á mikilvægi þess að stýra umferð gesta um svæðið, lágmarka rask á gróðri og jarðmyndunum og taka tillit til fuglalífs við Laxá. Minjastofnun gerir ekki athugasemdir við skipulagslýsinguna og telur ekki þörf á frekari fornleifaskráningu. Umsagnaraðilar taka almennt jákvætt í fyrirhugaða skipulagsgerð.

Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd hefur farið yfir framkomnar umsagnir og leggur áherslu á að tekið verði mið af þeim við áframhaldandi vinnslu deiliskipulagstillögunnar. Sérstaklega verði hugað að útfærslu mannvirkja, öryggi og aðgengi gesta, vernd náttúru og fyrirkomulagi fráveitu og annarra innviða.

Nefndin leggur til við sveitarstjórn að vinnu við gerð deiliskipulags verði haldið áfram á grundvelli fyrirliggjandi lýsingar og framkominna umsagna. Fullunnin deiliskipulagstillaga verði lögð fyrir nefndina til afgreiðslu áður en hún verður auglýst samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

5.Stóra Skál - L211010 - Umsókn um byggingarleyfi-Stóraskál 1

2305016

Tekin er fyrir að nýju umsókn um byggingarleyfi fyrir Stóru-Skál 1 (L211010), sem áður var á dagskrá nefndarinnar þann 3. september 2026. Málinu var þá frestað með vísan til þess að leggja þyrfti fram uppfærða afstöðumynd og greinargerð þar sem stærð, afmörkun og nýtingarhlutfall lóðar væru samræmd, auk þess sem sýnt yrði fram á að landeignin uppfyllti nýtingarhlutfall íbúðarhúsalóða (0,05) samkvæmt gildandi aðalskipulagi með samþykktri merkjalýsingu og leiðréttingu í landskráningarkerfi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS).



Fyrir liggur að hönnunargögn og afstöðumynd hafa verið uppfærð. Skráð stærð lóðar hefur verið leiðrétt í landskráningarkerfi HMS í 6.000 m². Samkvæmt Aðalskipulagi Kjósarhrepps 2024-2036 er hámarksbyggingarheimild á íbúðarlóðum að stærð 0,4 - 0,8 ha allt að 300 m². Samkvæmt framlögðum aðaluppdráttum er fyrirhugað íbúðarhús 218,7 m² og bílskúr 81,3 m², samtals 300,0 m².
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd telur að framkomin gögn uppfylli þau skilyrði sem sett voru í bókun nefndarinnar frá 3. september 2026 og að erindið sé í samræmi við gildandi aðalskipulag.

Nefndin samþykkir erindið. Byggingarfulltrúa er falið að veita byggingarleyfi þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist, sbr. 2.3.8. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
Fylgiskjöl:

6.Stekkur 2, L206590 umsókn um byggingarleyfi

2610025

Lögð er fram umsókn Kristínar L. Ólafsdóttur um byggingarheimild á lóðinni Stekkur 2 (L206590).

Lóðin var stofnuð og samþykkt í sveitarstjórn þann 7. febrúar 2024 á grundvelli greinargerðar og landskiptauppdráttar dags. 7. desember 2023. Fyrir var á lóðinni mannvirki sem eftir stofnun lóðarinnar stendur 9,3 m frá lóðarmörkum.



Um er að ræða 73,5 m² hús á 4.112 m² frístundalóð. Samkvæmt núgildandi Aðalskipulagi Kjósarhrepps er byggingarheimild á frístundalóð af þessari stærð 200 m² og rúmast mannvirkið því vel innan heimilda aðalskipulags. Umrætt hús var veitt stöðuleyfi árið 2005.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd bendir á að heildarstærð hússins er 73,5 m² og rúmast því vel innan 200 m² hámarksbyggingarmagns frístundalóða samkvæmt Aðalskipulagi Kjósarhrepps 2024-2036. Fyrirliggjandi staðsetning hússins (9,3 m frá lóðarmörkum) lá fyrir og var lögð til grundvallar við stofnun og samþykkt lóðarinnar í sveitarstjórn þann 7. febrúar 2024.

Nefndin gerir ekki athugasemd við erindið og samþykkir byggingaráformin fyrir sitt leyti. Byggingarfulltrúa er falið að veita byggingarheimild þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist, sbr. 2.3.8. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012.

7.Ástand vega Eyrarfjallsvegur

2611010

Lagt er fram til umræðu og afgreiðslu erindi er varðar ástand Eyrarfjallsvegar (460) eftir viðhaldsaðgerðir Vegagerðarinnar í október sl. Kynnt er bréf sem nefndinni og sveitarstjóra barst varðandi ófullnægjandi frágang og ástand vegarins.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd Kjósarhrepps lýsir yfir þungum áhyggjum og megnri óánægju með slæmt ástand vega í sveitarfélaginu og framkvæmd viðhalds á vegum Vegagerðarinnar.

Ítrekað hefur verið kvartað yfir langvarandi viðhaldsleysi á vegakerfi hreppsins. Síðastliðið sumar keyrði ástandið um þverbak þar sem djúpar holur og uppistandandi grjótklappir sköpuðu verulega hættu, en svör starfsmanna Vegagerðarinnar voru á þann veg að ekkert fjármagn væri til ráðstöfunar í viðhald.

Það kemur nefndinni því verulega á óvart að ráðist hafi verið í ofaníburð um miðjan októbermánuð. Efnið sem borið var á vegina er afar leirborið og við ríkjandi rigningartíð, samhliða frostskel í undirlagi, hefur vegyfirborðið breyst í ófæra drulluleðju þar sem vatn nær ekki að síga niður. Verkinu var haldið áfram án þess að yfirborð væri jafnað með fullnægjandi hætti og er vegurinn enn grófjafnaður og stórvarasamur.

Þetta ástand skapar mikla slysahættu nú í skammdeginu, auk þess sem eignatjón hefur þegar orðið, m.a. á Eyrarfjallsvegi þar sem ökutæki skemmdist verulega. Þá er algerlega óásættanlegt að leggja það á herðar bílstjóra skólabílsins að bera ábyrgð á öryggi barna við svo hættulegar aðstæður, en skólabíll ekur umrædda vegi tvisvar til fjórum sinnum á dag alla virka daga.

Íbúar og aðrir vegfarendur í Kjósarhreppi greiða kílómetragjöld og önnur opinber álögur til jafns við aðra landsmenn og eiga réttmæta kröfu á lágmarksþjónustu og öruggum samgöngum.

Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd krefst þess að Vegagerðin:

1.
Grípi þegar í stað til bráðaaðgerða til að tryggja umferðaröryggi og jafna yfirborð vega þar sem ofaníburður fór fram.

2.
Skipuleggi og vinni reglubundið viðhald á vor- og sumarmánuðum framvegis, en hefji ekki vanhugsaðar aðgerðir að haustlagi við óhagstæð veðurskilyrði.

Nefndin felur sveitarstjóra að koma bókun þessari tafarlaust á framfæri við Vegagerðina og innviðaráðuneytið, auk þess sem hún verði lögð fyrir sveitarstjórn á næsta fundi.

8.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 15

2611001F

9.Svæðisskipulagsnefnd fundur nr. 149

Fundi slitið - kl. 17:40.