Fara í efni

Sveitarstjórn

274. fundur 14. apríl 2023 kl. 12:30 - 14:00 stóra fundarsal í Ásgarði
Nefndarmenn
  • Jóhanna Hreinsdóttir (JH) oddviti
  • Sigurþór Ingi Sigurðsson (SIS) nefndarmaður
  • Jón Þorgeir Sigurðsson (JÞS) nefndarmaður
  • Regína Hansen Guðbjörnsdóttir nefndarmaður
  • Þórarinn Jónsson (ÞJ) nefndarmaður
Starfsmenn
  • Þorbjörg Gísladóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Þorbjörg Gísladóttir Sveitarstjóri
Dagskrá

1.Ársreikningur 2022

2304011

Tekinn er til fyrri umræðu ársreikningur Kjósarhrepps fyrir árið 2022.
Ársreikningi vísað til síðari umræðu.

2.Umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu

2302048

Lögð er fram til umsagnar beiðni frá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu um leyfi til reksturs Veitingaleyfi A Veitingahús í flokki II frá Sveitakaffi ehf., kt. 630223-0160, fyrir Kaffi Kjós.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við afgreiðslutíma vínveitinga en gerir athugasemd við afgreiðslutíma útiveitinga og leggur til að afgreiðslutími verði frá 10:00 til 24:00 virka daga en 10:00 til 01:30 aðfaranætur frídaga. Að öðru leyti gerir sveitarstjórn ekki athugasemd við útgáfu rekstrarleyfis.

Sigurþór Ingi situr hjá.

Fundi slitið - kl. 14:00.