Fara í efni

Sveitarstjórn

285. fundur 21. desember 2023 kl. 17:00 - 17:20 stóra fundarsal í Ásgarði
Nefndarmenn
  • Jóhanna Hreinsdóttir (JH) oddviti
  • Sigurþór Ingi Sigurðsson (SIS) nefndarmaður
  • Jón Þorgeir Sigurðsson (JÞS) nefndarmaður
  • Þórarinn Jónsson (ÞJ) nefndarmaður
  • Þorbjörg Skúladóttir varamaður
    Aðalmaður: Þóra Jónsdóttir (ÞJ)
Starfsmenn
  • Þorbjörg Gísladóttir Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Þorbjörg Gísladóttir Sveitarstjóri
Dagskrá

1.Hækkun á útsvarsálagningu vegna fjármögnunar þjónustu á við fatlað fólk.

2312016

Fyrir liggur samkomulag á milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 15.12.2023, varðandi fjármögnun þjónustu við fatlað fólk og hækkun útsvarsálagningar.



Eftirfarandi tillaga lögð fram.

Með vísan til ákvæða varðandi breytingu á fjármögnun á þjónustu við fatlað fólk í fyrirliggjandi samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 15.12.2023, er byggir á breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem samþykkt var á Alþingi 15.12.2023, samþykkir sveitarstjórn Kjósarhrepps að álagningahlutfall útsvars fyrir árið 2024 hækki um 0,23% og verði 14,45%.
Samþykkt samhljóða.

2.Fundargerð 47. Aðalfundar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu ásamt starfs- og fjárhagsáætlun..

2311019

Fundargerð lögð fram til kynningar. Starfs- og fjárhagsáætlun lögð fram til staðfestingar.
Sveitarstjórn staðfestir starf- og fjárhagsáætlun Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu fyrir árið 2024.

Fundi slitið - kl. 17:20.