Fara í efni

Samþykkt á óverulegri breytingu aðalskipulags Kjósarhrepps 2017-2029

Deila frétt:

Samþykkt á óverulegri breytingu aðalskipulags Kjósarhrepps 2017-2029

Sveitarstjórn Kjósarhrepps samþykkti 30. mars 2022 tillögu á breytingu Aðalskipulags Kjósarhrepps 2017-2029 og telur að um óverulega breytingu aðalskipulags sé að ræða, sbr. 2. mgr. 36. gr. Skipulagslaga. þ.e. einungis er gerð textabreyting og að skilmálum fyrir frístundabyggðina F4a sé breytt, en uppdráttur helst óbreyttur. Þá sé um að ræða stækkun aðliggjandi frístundabyggðar úr 2 ha í allt að 3,5 ha, sem heimili 8 lóðir í stað 5 áður og gert sé ráð fyrir að nýta aðkomu og veitukerfi frístundasvæðis sem fyrir er.

Í Aðalskipulagi Kjósarhrepps 2017-2029 er svæðið skilgreint á landbúnaðarlandi í flokki I. Svæðið er framræst og ræktað og flokkast sem tún og akurlendi (L14.2) í vistgerðarkortlagningu Náttúrufræðistofnunar Íslands. Engar jarðmyndanir eru á svæðinu sem falla undir sérstaka vernd vistkerfa og jarðminja skv. 61. gr. laga um náttúruvernd og engar þekktar fornminjar eru á svæðinu. Svæðið er á C- hluta náttúruminjaskrár nr. 134. Í stefnu seitarfélagsins í aðalskipulagi segir að svæði sem flokkast sem gott landbúnaarland (flokkur I og II) verði ekki tekið til annarrar landnýtingar sem takmarki matvælaframleiðslu til framtíðar. Nú þegar er búið að leggja aðkomuveg sem nýtist svæðinu og byrjað er að reisa frístundahús austan vegarins. Svæðið er í jaðri þegar raskaðs lands, þar sem núverandi innviðir yrðu nýttir. Því er ekki verið að raska samfelldu landbúnaðarlandi.

Hægt er að kæra samþykkt sveitarstjórnar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um samþykkt deiliskipulagsbreytingarinnar í B-deild Stjórnartíðinda.

Þeir sem óska frekari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Kjósarhrepps.

 

Skipulagsfulltrúi Kjósarhrepps