Fara í efni

Kjósarhreppur óskar eftir að ráða sveitarstjóra

Deila frétt:

Sveitarstjóri Kjósarhrepps

Kjósarhreppur er dreifbýlishreppur í nágrenni við Reykjavík. Íbúar þess eru um 260 og er víða skipulögð sumarhúsabyggð. Kjósin þykir státa af fallegu landslagi og náttúrufegurð sem er víða ósnortin en að öðru leiti er hún skipulagt landbúnaðar-svæði. Þar fyrirfinnst ein elsta kirkja landsins og einnig hið þekkta félagsheimili Ungmennafélagsins Drengs, Félagsgarður. Helstu upplýsingar um Kjósarhrepp má finna á www.kjos.is

Sveitarstjóri Kjósarhrepps

Kjósarhreppur óskar eftir að ráða framsækinn einstakling í starf sveitarstjóra. Sveitarfélagið er vel rekið og innan þess eru mikil tækifæri. Leitað er að aðila sem hefur brennandi áhuga á að taka þátt í að móta framtíðarsýn þess og stuðla að faglegri stjórnsýslu.

Helstu viðfangsefni og ábyrgð:

  • Daglegur rekstur sveitarfélagsins og ábyrgð á framkvæmd ákvarðana hreppsnefndar
  • Yfirumsjón með skipulagi og virkni stjórnsýslu
  • Náið samstarf við hreppsnefnd, undirbúningur og upplýsingagjöf á fundum hreppsnefndar
  • Hagsmunagæsla og samskipti við íbúa, stofnanir, samtök og fyrirtæki


Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Farsæl reynsla af stjórnun, mannauðsmálum, stefnumótun og rekstri
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu, einkum sveitarfélags er æskileg
  • Leiðtogahæfni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skipulagshæfni
  • Hæfni í framsetningu á efni í ræðu og riti
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur

Umsóknarfrestur er til og með 11. júlí 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is) í síma 511 1225.

SÆKJA UM STARFIÐ