Fara í efni

Sveitarstjórn

315. fundur 04. febrúar 2026 kl. 16:00 - 17:30 stóra fundarsal í Ásgarði
Nefndarmenn
  • Jóhanna Hreinsdóttir (JH) oddviti
  • Sigurþór Ingi Sigurðsson (SIS) nefndarmaður
  • Jón Þorgeir Sigurðsson (JÞS) nefndarmaður
  • Þórarinn Jónsson (ÞJ) nefndarmaður
  • Þóra Jónsdóttir (ÞJ) nefndarmaður
Starfsmenn
  • Þorbjörg Gísladóttir Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Þorbjörg Gísladóttir Sveitarstjóri
Dagskrá

1.Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 29

2601002F

  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 29 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til að málinu verði frestað og felur verkefnastjóra að ræða við málsaðila. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 29 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til að málinu verði frestað og felur verkefnastjóra að ræða við málsaðila. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 29 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd telur að tillagan kalli ekki á breytingu á deiliskipulagi og fái málsmeðferð í samræmi við 3 mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi þar sem fyrirhuguð áform séu þess eðlis að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Bókun fundar Sveitarstjórn tekur ekki afstöðu til málsins þar sem hér er um óformlega fyrirspurn að ræða.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 29 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til að málinu verði frestað og felur verkefnastjóra að ræða við málsaðila. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 29 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd telur ekkert því til fyrirstöðu að sameina lóðirnar en breyting á skráningu lóðar samræmist ekki núgildandi Aðalskipulagi. Bókun fundar Sveitarstjórn tekur ekki afstöðu til málsins þar sem ekki liggur fyrir formleg umsókn.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 29 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd hafnar málinu. Bókun fundar Sveitarstjórn tekur ekki afstöðu til málsins þar sem hér er um óformlega fyrirspurn að ræða.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 29 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd hafnar málinu. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 29 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd telur að skoða þurfi fyrirkomulag lóða með tilliti til heildar skipulags svæðissins og ofanflóðamats fyrir svæðið. Bókun fundar Sveitarstjórn tekur ekki afstöðu til málsins þar sem ekki liggur fyrir formleg umsókn.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 29 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd telur að æskilegt sé að halda í áningarstað á þessu svæði og leggur til við sveitarstjórn að vinna málið áfram með landeigenda og Vegagerðinni. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar og verkefnastjóra Skipulagssviðs falið að fylgja málinu eftir.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 29 Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd samþykkir umsóknina með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda skv. 2.mgr. 44.gr. skipulagslaga. Byggingarfulltrúa falið að veita byggingarheimild þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist , sbr. 2.3.8. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
    Nefndin er sammála um að grenndarkynna fyrir eigendum Meðalfells L126165.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 29 Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd samþykkir umsóknina og er sammála um að falla frá grenndarkynningu sbr. 3.mgr.44.gr Skipulagslaga 123/2010, enda liggi allar meginforsendur fyrir í aðalskipulagi. Byggingarfulltrúa falið að veita byggingarleyfi þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist, sbr. 2.4.4. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012.

    Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd vekur athygli á að byggingarfulltrúa er heimilt að leggja á stjórnvaldssekt á framkvæmdir sem eru byggingarleyfisskyldar án þess að hafa fengið byggingarleyfi skv. 9. gr. laga um mannvirki 160/2010.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 29 Bókun fundar Fundargerð lögð fram til kynningar.

2.Fundargerð 199. fundar Heilbrigðisnefndar Vesturlands ásamt ársskýrslu og endurskoðaðri fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirlits Vesturlands.

2511022

Lögð er fram endurskoðuð fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirlits Vesturlands. Breytingin felst í að hætt er við að ráða starfsmann til að sinna lóðahreinsun og framlag sveitarfélaga milli ára í takt við verðlagsþróun.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða breytta fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirlits Vesturlands.

3.Reglur um akstursþjónustu fyrir eldri borgara.

2601020

Lagðar eru fram til staðfestingar reglur um akstursþjónustu fyrir eldri borgara í Kjósahreppi.
Samþykkt samhljóða.

4.Umsagnarbeiðni um gistileyfi í flokki II frá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu.

2601029

Lögð er fram umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu vegna umsóknar Kiðafells ehf. um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II-C minna gistiheimili.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.

5.Uppsögn á leigusamning um Félagsgarð.

2509018

Lögð eru fram til staðfestingar drög að auglýsingu eftir nýjum rekstraraðila að Félagsgarði.
Sveitarstjórn staðfestir auglýsinguna.

6.Samstarfsverkefni Sorpu og Kjósarhrepps um nýtingu Moltu í landbúnaði.

2601033

Lagt er fram til staðfestingar kostnaður við samstarfsverkefni Sorpu, Kjósarhrepps og bænda í Kjósarhreppi. Verkefnið felur í sér að Sorpa leggur til Moltu sem Kjósarhreppur sér um að aka til þeirra bænda sem eru þátttakendur í verkefninu. Bændur í Kjósarhreppi munu fullvinna Moltuna og nýta til uppgræðslu og endurræktar túna. Gert er ráð fyrir að Rannsóknarmiðstöð landbúnaðarins komi að verkefninu. Verkefnið er liður í kolefnisjöfnun sveitarfélagsins. Gert er ráð fyrir að verkefnið muni kosta um 1.400.000 kr. fyrir utan vsk. Upphæðin verður tekin af handbæru fé.
Sveitarstjórn samþykkir að taka þátt í verkefninu og felur sveitarstjóra að gera viðauka við fjárhagsáætlun 2026-2029.

7.Skipun aðal- og varafulltrúa í Kjörstjórn Kjósarhrepps.

2601039

Arna Grétarsdóttir aðalfulltrúi í kjörstjórn óskar eftir að láta af störfum í stjórninni vegna brottflutnings úr sveitarfélaginu. Í hennar stað kemur inn í kjörstjórn varamaðurinn Aðalheiður Birna Einarsdóttir. Nýr varamaður er skipuð Guðný G. Ívarsdóttir.
Sveitarstjórn staðfestir skipan nefndra fulltrúa sem aðal- og varamenn í kjörstjórn.

8.Landeldi í Hvalfirði - 28.000 tonna eldi á ári.

2601006

Lögð er fram umsögn sveitarstjórnar Kjósarhrepps vegna umhverfismatsskýrslu Aurora fiskeldis ehf. vegna fyrirhugaðs "landeldis" við Grundartanga í Hvalfirði.
Sveitarstjórn gerir alvarlegar athugasemdir við skýrsluna og mótmælir eindregið fyrirhugðu svokölluðu landeldi sem Aurora fiskeldi ehf. hyggst fara í á Grundartanga.

Umsögn sveitarstjórnar Kjósarhrepps er eftirfarandi:
umhverfismatsskýrsla er unnin af verkfræðistofunni Eflu fyrir Aurora fiskeldi ehf. og á þeirra kostnað. Skýrslan ber þess sterklega merki að hagsmunir Aurora fiskeldis séu í fyrirrúmi.
Vakin er athygli á því að einungis eru 2,8 km frá strönd að strönd þar sem framkvæmdin á að fara fram, og að fjöruborði Kjósarhrepps. Ekkert byrgir sýn né hljóð yfir fjörðinn. Framkvæmdir á Grundartanga eru á sveitarfélagamörkum og ber að skoða sem slíkar.
Sjónmengun
Í umhverfismatsskýrslunni er algjörlega skautað fram hjá þeirri ljósmengun sem þó má ætla að verði mikil þar sem hér er um ljóseldi að ræða. Samkvæmt fyrirtækinu á að taka inn þrjár eldislotur á ári. Til að viðhalda vaxtahraða og halda niðri kynþroska þarf ljósastýringu. Markmið hennar er að herma eftir árstíðabundnu dagsljósi. Því er ljóst að ljósamengun frá eldinu verður mikil og stöðug allan sólarhringinn og allt árið um kring.
Í kafla 4.5.4 er fjallað um möguleg áhrif framkvæmdarinnar á landslag, ásýnd og sjónræna þætti. Þar er talað um að sjónræn áhrif bygginga landeldisins muni falla í skuggann af risabyggingum vegna fyrirhugaðrar rafeldsneytisframleiðslu á næstu lóð sem er í skipulagsferli en ekki búið að samþykkja. Hér má sjá einbeittan vilja til að hvítþvo verkefnið, við mótmælum því alfarið þessari staðhæfingu í skýrslunni, við teljum þvert á móti að samlegðaráhrif verði mjög mikil ef af verður. Það afsakar ekki hraðakstur að aðrir keyri hraðar, það ættu skýrsluhöfundar að vita. Skýrsluhöfundar telja að áhrif verksmiðjunnar verði „nokkuð neikvæð“, við teljum augljóst að áhrifin verði verulega neikvæð, a.m.k. sé litið til þess sjónarhorns sem íbúar í Kjósarhreppi búa við.
Mengun sjávar
Fyrirhuguðu fiskeldi mun fylgja gríðarlegt magn úrgangs, samkvæmt umhverfismatsskýrslu er gert ráð fyrir að við fullan rekstur muni skólphreinsivirki stöðvarinnar anna 150.000 persónueiningum (PE). Persónueining er staðlað hugtak í mengunarrétti og jafngildir skólpmagni eins íbúa. Þetta þýðir að úrgangur stöðvarinnar er sambærilegur heildarlosun Reykjavíkurborgar, en losunin er frá einum iðnaðarpunkti, ekki dreifðri borg. Það sem gerir málið enn alvarlegra er að landeldið er staðsett inni í firði en ekki við opið haf.
Í kafla 2.3.7 er fjallað um fráveitu og úrgang, þar kemur fram að framkvæmdaaðili geri ráð fyrir að nýta 75% úrgangs til framleiðslu lífgass annars vegar og hins vegar til framleiðslu íblöndunarefnis í áburð. Hvorug leiðin er fullþróuð og ekki er fyrirséð hvenær það verður né er lagalegur grundvöllur til staðar varðandi þessar aðferðir. Það er því ábyrgðarlaust að kasta þeim fram í skýrslu sem nota á til að meta umhverfisáhrif verkefnisins þar sem þetta er alls ekki í hendi en er þó eitt af meginskilyrðum starfsleyfis. Skýrsluhöfundar telja að viðtaki og lífríki í viðtaka verði fyrir „óverulegum áhrifum“, þá eru þeir að gefa sér rangar forsendur sem gagnast framkvæmdaaðila, þar sem eins og áður hefur komið fram sú leið sem þeir hyggjast fara til að endurvinna um 75% af þeim úrgangi sem fellur til er ekki fær. Þ.a.l. verður að gera ráð fyrir því að úrgangurinn fari allur í sjóinn.

Slysasleppingar
Laxá í Kjós er ein þekktasta og verðmætasta laxveiðiá Íslands með sterka náttúru-, menningar- og efnahagslega þýðingu fyrir Kjósarhrepp. Villtur lax gengur upp í ánna, erfðablöndun eða sjúkdómasmit frá eldislaxi væri alvarlegt og óafturkræft. Framkvæmdaaðili leggur upp með að hér sé um lokað landeldi að ræða, við nánari skoðun kemur í ljós að svo er ekki. Eins og hefur komið í ljós, þrátt fyrir fyrirbyggjandi aðgerðir, er mikil hætta á slysasleppingum þegar fiski er dælt í skip eða kvíar. Ein slysaslepping er of mikið og mun hafa óafturkræf áhrif á villtan lax á svæðinu.
Faxaflói og tengdir firðir hafa í stjórnsýsluframkvæmd og stefnumörkun stjórnvalda verið meðhöndlaðir sem verndarsvæði gegn fiskeldi með framandi laxastofnum vegna verndar villtra lax- og silungsstofna. Með fyrirhugaðri framkvæmd Aurora verður fluttur frjór norskur eldislax inn á friðunarsvæði og flutningi á lifandi fiski í opnu kerfi.
Ef/þegar strok verður við dælingu eða flutning í Hvalfirði eða Faxaflóa er raunhæft að eldislax gangi í nærliggjandi ár s.s. Laxá í Kjós, Elliðaár, Leirvogsá, Korpu, Brynjudalsá, Botnsá auk annarra laxveiðiáa við Faxaflóa sem teljast meðal bestu laxveiðiáa heims. Villti íslenski laxastofninn í heild telur aðeins 50?70 þúsund laxa, á meðan hundruð þúsunda eldislaxa eru fluttir í hverri lotu. Þetta er óásættanleg áhætta fyrir erfðafræðilega vernd og eignarrétt landeigenda.

Áhrif á atvinnustarfsemi í Kjós.
Uppbygging á Grundartangasvæðinu er komin að þolmörkum og ógnar atvinnustarfsemi í Kjósarhreppi. Í Kjósarhreppi eru meginatvinnuvegir matvælaframleiðsla í formi landbúnaðar og ferðamennska sem er ört vaxandi. Ferðaþjónusta og landbúnaður byggja í ríkum mæli á ósnortinni náttúru, hreinu umhverfi og jákvæðri ímynd. Þessum atvinnugreinum báðum stendur veruleg ógn af mengandi iðnaði á Grundartanga. Stærsti vinnustaðurinn í sveitarfélaginu er Sjóböðin í Hvammsvík, þar starfa í dag um 40 manns og innan tveggja ára er gert ráð fyrir að þar muni starfa um 80 manns. Sjóböðunum stendur veruleg ógn af mengun sjávarins í Hvalfirði, bæði raun og ýmindarlega. Uppsöfnuð áhrif og viðkvæmni svæðisinsVið mat á framkvæmdinni virðist lögð áhersla á einstaka þætti en minna tillit tekið til uppsafnaðra áhrifa, nema þegar það hentar framgangi verkefnisins. Svæðið er þegar undir álagi af annarri starfsemi og mikilvægt er að horfa til heildarmyndar.
Landeldi af þessari stærðargráðu krefst mikillar orku, mikils vatnsmagns og losar verulegt magn úrgangsefna. Þótt einstakir mælikvarðar kunni að vera innan reglugerðarmarka er hætta á að samspil margra þátta leiði til hnignunar umhverfisgæða til lengri tíma.

Lokaorð
Umhverfismatsskýrslan er eins og áður segir unnin af Eflu fyrir framkvæmdaaðilann og er flókin 300 blaðsíðna upplýsingagjöf sem ekki er til þess fallin að almenningur geti lesið sér til gagns. Gerð er alvarleg athugasemd við fyrirkomulag kynningar á verkefninu, engin kynning hefur farið fram á vegum sveitarfélagsins Hvalfjarðarsveitar sem ætla má að geti verið hlutlaus upplýsingagjöf til íbúa og annarra hagsmunaaðila.

Sveitarstjórn samþykkir umsögnina samhljóða.

9.Fundargerð 992. fundar stjórnar Samabands íslenskar sveitarfélaga.

2602001

Fundargerð lögð fram til kynningar.

10.Fundargerð 621. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

2602002

Fundargerð lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:30.