Fara í efni

Sveitarstjórn

316. fundur 04. mars 2026 kl. 16:00 stóra fundarsal í Ásgarði
Nefndarmenn
  • Jóhanna Hreinsdóttir (JH) oddviti
  • Sigurþór Ingi Sigurðsson (SIS) nefndarmaður
  • Jón Þorgeir Sigurðsson (JÞS) nefndarmaður
  • Þórarinn Jónsson (ÞJ) nefndarmaður
  • Sævar Jóhannesson (SJ) varamaður
    Aðalmaður: Þóra Jónsdóttir (ÞJ)
Starfsmenn
  • Þorbjörg Gísladóttir Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Þorbjörg Gísladóttir Sveitarstjóri
Dagskrá

1.Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 30

2602002F

  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 30 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 30 Að mati nefndarinnar felur fyrirhuguð lóðaskipting ekki í sér breytingu á skipulagslegum forsendum gildandi deiliskipulags. Byggingarreitir haldast óbreyttir og heimilað byggingarmagn og nýting svæðisins breytast ekki. Þá hefur skiptingin ekki áhrif á aðkomu, gatnakerfi eða veitur og breytir hvorki þéttleika byggðar né ásýnd svæðisins. Um er að ræða eignarlega afmörkun innan óbreyttra skipulagsheimilda og hefur breytingin ekki áhrif á hagsmuni aðliggjandi lóða.
    Með hliðsjón af framangreindu telur skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd að fyrirhuguð skipting lóðarinnar feli ekki í sér breytingu á gildandi deiliskipulagi. Á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er því fallið frá gerð deiliskipulagsbreytingar og merkjalýsing samþykkt.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 30 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til að málinu verði frestað og felur verkefnastjóra að ræða við málsaðila. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 30 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til að málinu verði frestað og felur verkefnastjóra að ræða við málsaðila. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.

2.Breyttur fundartími sveitarstjórnar í apríl 2026.

2603004

Lagt er til að vegna Páskahátíðarinnar verði reglulegum fundi sveitarstjórnar fyrsta miðvikudag í apríl mánuði seinkað um viku og haldinn 8. apríl nk.
Samþykkt samhljóða.

3.Fundargerðir 142. og 143. fundar Svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins.

2603001

Fundargerðir lagðar fram til kynningar.

4.Fundargerðir 622. og 623. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

2603002

Fundargerðir lagðar fram til kynningar.

5.Fundargerðir 992. og 993. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Fundi slitið.