Fara í efni

Sveitarstjórn

317. fundur 08. apríl 2026 kl. 16:00 - 18:10 stóra fundarsal í Ásgarði
Nefndarmenn
  • Jóhanna Hreinsdóttir (JH) oddviti
  • Sigurþór Ingi Sigurðsson (SIS) nefndarmaður
  • Jón Þorgeir Sigurðsson (JÞS) nefndarmaður
  • Þórarinn Jónsson (ÞJ) nefndarmaður
  • Þóra Jónsdóttir (ÞJ) nefndarmaður
Starfsmenn
  • Þorbjörg Gísladóttir Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Þorbjörg Gísladóttir Sveitarstjóri
Dagskrá

1.Breytingartillaga staðfanga

2603017

Í Kjósinni er töluvert um að sömu eða mjög lík staðföng séu á fasteignum. Þetta getur og hefur valdið töluverðum óþægindum þegar kalla þarf á neyðarþjónustur. Til að tryggja aðgang neyðarþjónustu og almannavarna að samræmdum upplýsingum er lagt til að verkefnastjóra á skipulagssviði verði falið í samstarfi við eigendur fasteigna að leita leiða til að samræma skráningu hverfa, götuheita og staðfanga til þess að auðvelda upplýsingaöflun um áfangastaði, staðsetningu lóða og aðkomu að mannvirkjum.
Samþykkt samhljóða.
Friðrik Einarsson endurskoðandi KPMG og Berglind H.Aspelund aðlabókari Kjósarhrepps koma inn á fundinn.

2.Ársreikningur Kjósarhrepps 2025

2604001

Ársreikningur Kjósarhrepps fyrir árið 2025 tekinn til fyrri umræðu.
Friðrik Einarsson endurskoðandi frá KPMG fer yfir niðurstöðu ársreikning í gegnum fjarfundarbúnað.Umræðum um ársreikning vísað til síðari umræðu, sveitarstjórn þakkar Friðrik fyrir kynninguna.
Friðrik Einarsson endurskoðandi KPMG og Berglind H. Aspelund aðlabókari Kjósarhrepps yfirgefa fundinn.

3.Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 31

2603002F

  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 31 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að breytingin fái málsmeðferð í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Lagfæra þarf samþykktartextann á breytingartillögunni. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 31 Skipulags- umhverfis- og samgöngunefnd vísar til fyrri afgreiðslu sinnar frá 30. október 2025 þar sem tillaga að deiliskipulagi Eyjatjarnar í landi Eyja 2 (L125987) var samþykkt með fyrirvara. Nefndin hefur nú farið yfir uppfærð gögn dagsett 20. mars 2026. Staðfest er að brugðist hefur verið við athugasemdum nefndarinnar og texta bætt inn í skipulagsskilmála (kafli 3) sem kveður skýrt á um að uppbygging á nýju svæði sé háð því að ný vegtenging hafi verið lögð. Með vísan til þess að fyrirvarinn hefur verið uppfylltur, leggur nefndin til við sveitarstjórn að tillagan verði endanlega samþykkt og send Skipulagsstofnun til afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 31 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd frestar málinu þar til fyrir liggur í hvaða landi aðkomuvegur fyrir lóðir liggur og felur verkefnastjóra að ræða við málsaðila.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 31 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd hafnar málinu þar sem það samræmist ekki núgildandi Aðalskipulagi 2017-2029. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 31 Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd samþykkir umsóknina með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda skv. 2.mgr. 44.gr. skipulagslaga. Byggingarfulltrúa falið að veita byggingarleyfi þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist, sbr. 2.4.4. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
    Nefndin er sammála um að grenndarkynna fyrir eigendum Sætún L126480, Sogn 2 L126468, Sogn 1 L126469 og Vegagerðinni.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 31 Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd frestar málinu og felur verkefnastjóra að ræða við eigendur lóða á svæðinu. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 31 Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd samþykkir samhljóða og leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lóðarinnar með fyrirvara um samþykki þinglýsts eiganda upprunalands. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar. Jafnframt hvetur sveitarstjórn til þess að farið verði í deiliskipulagsvinnu fyrir svæðið.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 31 Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd samþykkir samhljóða og leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lóðarinnar með fyrirvara um samþykki þinglýsts eiganda upprunalands. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar. Jafnframt hvetur sveitarstjórn til þess að farið verði í deiliskipulagsvinnu fyrir svæðið.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 31 Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytingu á afmörkunum. Með fyrirvara um að gerð verði kvöð um aðkomu í gegnum Stekk 1 fyrir lóðina Stekk 6. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar. Jafnframt hvetur sveitarstjórn til þess að farið verði í deiliskipulagsvinnu fyrir svæðið.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 31 Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd samþykkir umsóknina með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda skv. 2.mgr. 44.gr. skipulagslaga. Byggingarfulltrúa falið að veita byggingarheimild þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist , sbr. 2.3.8. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
    Nefndin er sammála um að grenndarkynna fyrir eigendum Meðalfells L126165.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 31 Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd samþykkir umsóknina með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda skv. 2.mgr. 44.gr. skipulagslaga. Byggingarfulltrúa falið að veita byggingarheimild þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist , sbr. 2.3.8. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
    Nefndin er sammála um að grenndarkynna fyrir eigendum Hjarðarholtsvegi 20, 16, 17, 15 og 13.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 31 Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd samþykkir umsóknina og er sammála um að falla frá grenndarkynningu sbr. 3.mgr.44.gr Skipulagslaga 123/2010, enda liggi allar meginforsendur fyrir í aðalskipulagi. Byggingarfulltrúa falið að veita byggingarleyfi þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist, sbr. 2.4.4. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 og að deiliskipulag fyrir svæðið hefur öðlast gildi. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 31 Bókun fundar Fundargerð lögð fram til kynningar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 31 Bókun fundar Fundargerð lögð fram til kynningar.

4.Viðauki I við fjárhagsáætlun 2026

2601036

Lagður er fram til staðfestingar viðauki 1 við fjárhagsáætlun 2026-2029.

Rekstrarreikningur:

Tilraunaverkefni um nýtingu Moltu til uppgræðslu í samvinnu við bændur. Kostnaðurinn er vegna flutnings. Málaflokkur: 08-Hreinlætismál, deild: 0820-Sorphreinsun og sorpeyðing, fjárhagslykill: 4943-sorpeyðing, upphæð til hækkunar 1.400.000 kr.



Félagsleg heimaþjónusta. Málaflokkur: 02-Félagsmál, deild: 0215-Félagsleg heimaþjónusta, fjárhagslykill: 4991-Aðkeypt þjónusta, upphæð til hækkunar 6.600.000 kr. Akstur vegna félagslegrar heimaþjónustu. Málaflokkur: 02-Félagsmál, deild: 0215-Félagsleg heimaþjónusta, fjárhagslykill: 4143-Akstur, upphæð til hækkunar 5.400.000 kr.



Nýr myndvarpi, sýningartjald og annar búnaður sem keyptur er af núverandi rekstraraðila. Málaflokkur: 31-Eignasjóður, deild: 3111-Félagsgarður, fjárhagslykill: 2854-Annar búnaður, upphæð til hækkunar 1.600.000 kr.



Samtals til hækkunar á rekstrarkostnaði og til lækkunar á handbæru fé 15.000.000 kr.



Efnahagsreikningur:

Innkaup á rusla pressu fyrir Gámaplanið. Deild 2950, fjárhagslykill: 19102 Framkvæmdir m/ endurkr. vsk. kr. 690.000, kemur til lækkunar á handbæru fé.
Viðauki I við fjárhagsáætlun Kjósarhrepps 2026-2029 er samþykktur samhljóða.

5.Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II frá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu.

2603015

Tekin er fyrir umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Arctic Production ehf. sækir leyfi til reksturs gististaðar í flokki II í frístundahúsi að Þúfu 26, í Kjós.
Samkvæmt aðalskipulagi Kjósarhrepps 2017-2029 er ekki heimilt að vera með rekstur gistiheimilis í flokki II á frístundalóð. Sveitarstjórn hafnar því beiðninni.
Samþykkt samhljóða.

6.Breytt skipan í Kjörstjórn.

2604003

Aðalheiður Birna Einarsdóttir hefur óskað eftir lausn sem aðalmaður í kjörstjórn. Lagt er til að í hennar stað komi inn sem aðalmaður Guðný G. Ívarsdóttir, varamaður.



Í stað Guðnýjar G. Ívarsdóttur komi inn sem varamaður Brynja Laxdal.
Sveitarstjórn samþykkir beiðni Aðalheiðar Birnu og samþykkir skipan Guðnýjar G. Ívarsdóttur og Brynju Laxdal.

7.Fundargerðum 200. og 201. fundar Heilbrigðisnefndar Vesturlands ásamt Ársreikningi. fyrir árið 2025..

8.Fundargerðir 994., 995. og 996. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

2603024

Fundargerðir lagðar fram til kynningar.

9.Fundargerð og Ársreikningur Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu 2025_undirrritaður

2603008

Fundargerð og Ársreikningur lagt fram til kynningar.

10.Stefna um opinbera þjónustu.

2604006

Um nokkurt skeið hefur verið í vinnslu að gefa út stefnu um opinbera þjónustu. Stefnan er unnin af fjármála- og efnahagsráðuneytinu í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga og eru drög að henni lögð fram til kynningar.

11.Opinber innkaup - Bréf frá Samkeppniseftirlitinu.

2604005

Niðurstöður vinnustofu og ráðstefnu lagðar fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:10.