Sveitarstjórn
Dagskrá
1.Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 32
2604003F
-
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 32 Samþykkt með fyrirvara um að eftirfarandi verði lagfært:
Lagfæra skipulagsuppdrátt til samræmis við kröfur Vegagerðarinnar sem og uppfæra fornleifaskráningu og færa nýjar upplýsingar inn á skipulagsuppdrátt í samræmi við kröfur Minjastofnunar.
Verkefnastjóra er falið að fylgja málinu eftir. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar. -
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 32 Nefndin leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði samþykkt til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt skal þess gætt að lokaafgreiðsla og gildistaka deiliskipulagsins falli saman við eða fylgi í kjölfar staðfestingar á nýju Aðalskipulagi Kjósarhrepps 2024 - 2036. Auk þess liggi fyrir þinglýstur samningur samkvæmt kvöð um aðkomu um Eyrarkotsveg. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
-
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 32 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd hafnar umsókninni þar sem hún samræmist ekki núgildandi aðalskipulagi né nýju aðalskipulagi sem bíður staðfestingar og felur verkefnastjóra að ræða við umsækjanda. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
-
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 32 Skipulags-, umhverfis og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan hljóti málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndakynna þarf fyrir lóðunum L215924, L232639, L232640, L173144. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
-
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 32 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd bendir á að breyting á að stærð lóðarinnar kallar á breytingu á gildandi deiliskipulagi þar sem ekki er samræmi á milli nýrrar stærðar lóðarinnar og uppgefinnar stærðar í gildandi deiliskipulagi. Nefndin felur Verkefnastjóra að ræða við umsóknaraðila um gerð deiliskipulagsbreytingar.
Samþykkt með fyrirvara um breytingu á gildandi deiliskipulagi svæðisins. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar. -
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 32 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við seitarstjórn að tillagan verði grenndarkynnt í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynnt verður fyrir Vegagerðinni og Brekkum 2 L204482. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
-
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 32 Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd samþykkir breytinguna í samræmi við grein 2.3.4 í byggingarreglugerð 112/2012 og og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarheimild þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist, sbr. 2.3.8. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
-
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 32 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir umsóknina með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda skv. 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Byggingarfulltrúa falið að veita byggingarheimild þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist, sbr. 2.3.8. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012. Grenndarkynnt verður fyrir Hlíð 9 L126211, hlíð 11 L126203 og Hlíð 10A L126353. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
-
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 32 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir umsóknina með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda skv. 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Byggingarfulltrúa falið að veita byggingarheimild þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist, sbr. 2.3.8. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012. Grenndarkynnt verður fyrir Stekkjarflöt L237502, Neðri Háls 2 L237501 og Bollastaði L207158. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
-
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 32
2.Fjölskyldu- og menningarnefnd - 12
2604002F
Fundargerð Fjölskyldu og menningarnefndar lögð fram til kynningar.
-
Fjölskyldu- og menningarnefnd - 12 Nefndin fagnar uppbyggingunni á leiksvæðinu og leggur til að næsta sumar verði rólum fjölgað.
-
Fjölskyldu- og menningarnefnd - 12 Lagt fram til kynningar.
-
Fjölskyldu- og menningarnefnd - 12 Lagt fram til kynningar.
3.Ársreikningur Kjósarhrepps 2025
2604001
Ársreikningur Kjósarhrepps fyrir árið 2025 er lagður fram við síðari umræðu til staðfestingar. Fyrri umræða fór fram 8. apríl 2026.
Samstæðureikningur samanstendur af A- og B-hluta. Í A-hluta eru aðalsjóður og eignasjóður. Um er að ræða rekstrareiningar sem fjármagnaðar eru að hluta eða öllu leyti með skatttekjum.
Í B-hluta eru Kjósarveitur og Leiðarljós. Um er að ræða rekstrareiningar sem reknar eru sem fjárhagslega sjálfstæðar einingar og hafa lagaheimild til að innheimta þjónustugjöld.
Helstu niðurstöður: Rekstrarniðurstaða samstæðu sveitarfélagsins (A- og B-hluti) var jákvæð um 141,3 millj. kr. samanborið við 103,8 millj. kr. rekstrarafgang árið 2024. A-hluti var rekinn með 132,7 millj. kr. rekstrarafgangi, samanborið við 101,8 millj. kr. rekstrarafgang árið 2024.
Rekstrarniðurstaða samstæðu fyrir afskriftir nam 123,7 millj. kr. Fjármagnsgjöld nema 20,7 millj. kr. nettó og lækka um 5 millj. kr. á milli ára. Afskriftir nema 21,8 millj. kr.
Útsvarstekjur hækkuðu um 9,3 millj. kr. á milli ára. Útsvar og fasteignaskattar nema 367,1 millj. kr., framlög Jöfnunarsjóðs 51,5 millj. kr. og aðrar tekjur 90,5 millj. kr. Að teknu tilliti til millifærslna nema heildartekjur 509,2 millj. kr.
Fræðslu- og uppeldismál eru sem fyrr umfangsmesti málaflokkurinn í rekstri sveitarfélagsins. Börnum hefur fjölgað í sveitarfélaginu sem er af hinu góða. Málaflokkurinn tók til sín 136,3 millj. kr. árið 2024 en árið 2024 hækkaði málaflokkurinn um 36 millj. kr. Fjárfestingar námu 148,8 millj. og er það að mestu leyti vegna borunar á nýrri heitavatnsholu á vegum Kjósarveitna.
Skuldahlutfall samstæðunnar lækkar úr 41% árið 2024 í 25%.

Ársreikningur var samþykktur samhljóða og áritaður af sveitarstjórn.
4.Samfélagsstyrkur Kjósarhrepps
2510016
Félag íbúa og sumarhúsaeigenda við Eyjatún sækir um styrk til kaupa á rólu sem fyrirhugað er að setja upp á svæði sem er skilgreint sem leiksvæði samkvæmt núverandi deiliskipulagi. Um er að ræða grasflöt sem er miðsvæðis í sumarhúsabyggðinni. Að flötinni/svæðinu er gert ráð fyrir göngustígum sem munu tryggja gott aðgengi að leiksvæðinu. Félag íbúa og sumarhúsaeigenda við Eyjatún stefnir að því að byggja upp leiksvæði á þessari flöt og mun á næstu misserum standa í gerð göngustíga á svæðinu sem mun auka aðgengi að svæðinu til mikilla muna. Félagið sækir um styrk fyrir kaup á rólu sem er yrði fyrsta leiktækið sem sett yrði upp á leiksvæðinu. Félagið stefnir svo á að setja fallega girðingu í kringum leiksvæðið og koma upp fleiri leiktækjum í framtíðinni. Leiksvæðið verður opið öllum, sumarhúsaeigendum, íbúum og öðrum sem heimsækja sveitina okkar. Félagið hefur ekki fengið styrk áður.
Sótt er um styrk að upphæð 292.995 kr.
Sótt er um styrk að upphæð 292.995 kr.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita verkefninu 292.995 kr. styrk.
5.Samfélagsstyrkur Kjósarhrepps
2604029
Guðrún Bjarnadóttir fyrir hönd áhugahóps um heilsueflingu í Kjósinni sækir um styrk með það að markmiði að efla líkamlega og andlega heilsu þátttakenda, auka aðgengi að reglulegri hreyfingu í dreifbýli og styrkja félagsleg tengsl innan sveitarinnar. Verkefnið stuðlar að aukinni samheldni, bættri heilsu og virkni íbúa og eykur aðgengi að skipulagðri hreyfingu í Kjósinni. Með styrknum er ætlunin að efla og þróa verkefnið með kaupum á æfingabúnaði, svo sem ketilbjöllum, handlóðum, teygjum og æfingamottum. Búnaðurinn mun nýtast til að gera æfingar fjölbreyttari og meiri möguleikar að aðlaga eftir mismunandi getustigi þátttakenda. Um er að ræða fjárfestingu í búnaði sem mun nýtast verkefninu til lengri tíma og stuðla að áframhaldandi uppbyggingu heilsueflingar í sveitinni. Verkefnið hefur verið starfrækt í tvö ár. Æfingar fara fram tvisvar í viku og hefur þátttaka verið stöðug. Núverandi búnaður er mjög takmarkaður og því lítill möguleiki á þróun verkefnisins. Næsta skref er því að mæta þörfum þátttakenda og tryggja uppbyggingu og gæði verkefnisins. Gert er ráð fyrir að áhöldin verði eign Kjósarhrepps til framtíðar og muni þannig nýtast að sama skapi annarri heilsueflingu til framtíðar. Verkefnið hefur ekki hlotið styrk áður.
Sótt er um 250.000 kr.
Sótt er um 250.000 kr.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita verkefninu 250.000 kr. styrk.
6.Samfélagsstyrkur Kjósarhrepps
2605005
Félag sumarhúsaeigenda í Hvammsenda sækir um styrk til að gera göngustíg sem liggur að og meðfram sjónum með aðstöðu til að setjast og njóta útsýnisins yfir fjörðinn. Stöðugur bekkur á útsýnissvæði. Opið leiksvæði tengt göngustíg með fótboltamörkum, sandkassa og öðrum leiktækjum. Göngubrú yfir læk til að auðvelda aðgengi allra að svæðinu.
Verkefnið fékk áður styrk 2020, 100.000 kr., og aftur 2023 sem náðist ekki að nýta og hann því ekki greiddur. Þessi umsókn barst í búagátt Kjósahrepps fyrir haustúthlutun 2025 en fyrir mistök fór hún ekki fyrir fund.
Sótt er um styrk að upphæð 600.000 kr.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita verkefninu 300.000 kr. styrk.
7.Samfélagsstyrkur Kjósarhrepps
2605004
Sveppafélagið ehf. sækir um styrk til útgáfu sveppatals í Kjósarhreppi. Umsækjandi lýsir verkefninu svo:
Í sveppatali Kjósarhrepps langar mig að taka saman lista yfir alla þá sveppi sem fundist hafa í sveitarfélaginu á svipaðan hátt og plöntutal Björns Hjaltasonar gerir fyrir plöntur sem hafa fundist. Þó langar mig að lista upp fleiri eiginleika hverrar sveppategundar en Björn gerir fyrir plönturnar. Ég myndi til dæmis vilja draga fram upplýsingar um:
● Lifnaðarhætti hverrar tegundar (er hún til dæmis sýkill á plöntum eða dýrum, niðurbrotsvera, ljóstillífar hún o.s.frv.)
● Er tegundin háð öðrum tegundum (vex t.d. alltaf með birkitrjám? Mjög gagnlegar upplýsingar fyrir sveppatínslu!)
● Hvort tegundin sé æt, óæt eða jafnvel eitruð
● Hvenær árs birtist sveppurinn?
● Mynd af þeim tegundum sem ljósmyndir eru til af
Verkefnið skiptist í þrjá afmarkaða fasa:
1. Samantekt upplýsinga og heimilda (4 klst.): Leit í gagnagrunnum, leit að heimildum, lestur og yfirferð heimilda, viðtöl við staðkunnuga.
2. Skrif sveppatals Kjósarhrepps (17 klst.): Inngangskafli, samantekt upplýsinga um tegundir og eiginleika þeirra (121 tegund x 8 mínútur á hverja tegund).
3. Útgáfa og kynning (ef áhugi er fyrir hendi) (2,5 klst.) 3. Uppsetning, atriðisorðaskrá, kynning á verkefninu (ef áhugi er fyrir hendi)
Verkefnið hefur ekki hlotið styrk áður.
Sótt er um styrk að upphæð 253.659 kr.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita verkefninu 253.659 kr. styrk.
8.Samfélagsstyrkur Kjósarhrepps
2605003
Félag sumarbústaðaeigenda við Meðalfellsvatn sækir um styrk til kaupa á hringlaga borði og bekkjum fyrir 8 manns. Borðinu verður fundinn staður við vatnið þar sem má njóta útsýnisins.
Verkefnið hefur ekki hlotið styrk áður.
Sótt er um 210.000 kr.
Verkefnið hefur ekki hlotið styrk áður.
Sótt er um 210.000 kr.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita verkefninu 210.000 kr. styrk.
9.Samfélagsstyrkur Kjósarhrepps
2605002
Björn Hjaltason sækir um styrk til útgáfu á handbók um fiðrildi á Íslandi. Bókin er ríkulega myndskreytt, um 200 bls., unnin í samstarfi við Matthías S. Alfreðsson skordýrafræðing. Unnið hefur verið að verkinu sl. 3 ár, gert er ráð fyrir að vinnu við verkið ljúki seint á árinu 2026 og þá verði farið að leita að útgefanda.
Verkefnið hefur ekki hlotið styrk áður.
Sótt er um 700.000 kr.
Verkefnið hefur ekki hlotið styrk áður.
Sótt er um 700.000 kr.
Umsókn um styrk er synjað á þeim forsendum að hún samræmist ekki reglum um úthlutun Samfélagsstyrkja Kjósarhrepps.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
10.Samfélagsstyrkur Kjósarhrepps
2605001
Félag Frístundabyggðar Raðahverfis í Kjós sækir um styrk vegna uppbyggingar á opnu leiksvæði í Raðahverfi í Kjós. Fjárfest verður í leiktækjum fyrir börn og verða þau sett á sameiginlegt leiksvæði hverfisins. Verkefnið hlaut áður styrk árið 2023 að upphæð 200.855 kr. og aftur 250.000 kr. árið 2024.
Sótt er um styrk að upphæð 400.000.
Sótt er um styrk að upphæð 400.000.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita verkefninu 200.000 kr. styrk.
11.Samfélagsstyrkur Kjósarhrepps
2603007
Gunnar Bender sækir um styrk til framleiðslu á sjónvarpsþáttum um laxveiði í Kjósinni.
Verkefnið hefur áður hlotið 150.000 kr. styrk árið 2023 og 125.000 kr. árið 2025.
Sótt er um styrk að upphæð 350.000 kr.
Verkefnið hefur áður hlotið 150.000 kr. styrk árið 2023 og 125.000 kr. árið 2025.
Sótt er um styrk að upphæð 350.000 kr.
Umsókn um styrk er synjað á þeim forsendum að verkefnið falli ekki nógu vel að markmiðum samfélagsstyrkja Kjósarhrepps.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
12.Fundargerð 997. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
2605007
Fundargerð lögð fram til kynningar.
13.Fundargerð 626. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
2605008
Fundargerð lögð fram til kynningar.
14.Fundargerð 94. fundar stjórnar Kjósarveitna og Ársreikningur 2025 undirritaður.
2604025
15.Fundargerð Leiðarljóss og ársreikningur 2025 undirritaður
2604024
Fundargerð lögð fram til kynningar.
16.Samantekt frá fundi almannavarna vegna skýrslu Veðurstofu Íslands um áhrif hraunvár á höfuðborgarsvæðinu.
2605006
Lagt fram til kynningar.
Oddviti kveður sér hljóðs: Guðmundur Davíðsson hefur setið í sveitarstjórn Kjósarhrepps sem aðal- eða varamaður frá árinu 1998 og Þórarinn Jónsson hefur setið sem aðalmaður frá árinu 2010. Þeir hafa nú ákveðið að gefa ekki kost á sér áfram, af því tilefni þakkar oddviti þeim fyrir óeigingjarnt starf fyrir Kjósarhrepp og óskar þeim velfarnaðar í sínum störfum.
Fundi slitið - kl. 18:00.