Fara í efni

Sveitarstjórn

319. fundur 03. júní 2026 kl. 16:00 - 18:30 stóra fundarsal í Ásgarði
Nefndarmenn
  • Jóhanna Hreinsdóttir (JH) oddviti
  • Sigurþór Ingi Sigurðsson (SIS) varaoddviti
  • Jón Þorgeir Sigurðsson (JÞS) nefndarmaður
  • Þóra Jónsdóttir (ÞJ) nefndarmaður
  • Brynja Baldursdóttir
    Aðalmaður: Díana Þorsteinsdóttir
Starfsmenn
  • Þorbjörg Gísladóttir Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Þorbjörg Gísladóttir Sveitarstjóri
Dagskrá
Fundarstjóri leitar frábrigða og óskar eftir að eftirfarandi mál verði tekið á dagskrá.

Mál nr. 2606001 - Erindisbréf nefnda.

Samþykkt samhljóða.

1.Kjör oddvita og varaoddvita.

2605040

Lagðar eru fram tillögur um oddvita og varaoddvita sveitarstjórnar.
Gerð er tillaga um að Jóhanna Hreinsdóttir verði oddviti sveitarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.

Gerð er tillaga um að Sigurþór I. Sigurðsson verði varaoddviti sveitarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.

2.Skipan fulltrúa í stjórnir, nefndir, ráð og fundi á vegum Kjósarhrepps.

2605042

Skipan fulltrúa á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga.

- Gerð er tillaga um að sveitarstjóri verði aðalfulltrúi og Sigurþór I. Sigurðsson, varafulltrúi.



Skipan fulltrúa í Almannavarnarnefnd höfuðborgarsvæðisins.

-Gerð er tillaga um að sveitarstjóri og varaoddviti verði aðalfulltrúar og varafulltrúar verði Þóra Jónsdóttir og Jón Þorgeir Sigurðsson.



Skipan fulltrúa í Notendaráð Kjósarhrepps og Mosfellsbæjar um málefni fatlaðs fólks.

-Gerð er tillaga um að Þóra Jónsdóttir verði aðalfulltrúi f.h. Kjósarhrepps og Benedikta Birgisdóttir verði aðalfulltrúi f.h. notenda, Díana Þorsteinsdóttir verði varafulltrúi Kjósarhrepps og Sigurþór I. Sigurðsson verði varafulltrúi notenda.



Skipan fulltrúa í stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

-Gerð er tillaga um að aðalfulltrúi verði sveitarstjóri og varafulltrúi varaoddviti.



Skipan fulltrúa í Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins.

- Gerð er tillaga um að Elís Guðmundsson og Magnús Kristmannsson verði aðalfulltrúar og Petra Marteinsdóttir og Brynja Laxdal verði varafulltrúar.



Skipan fulltrúa í Skipulags- umhverfis- og samgöngunefnd Kjósarhrepps.

- Gerð er tillaga um að eftirfarandi aðal- og varafulltrúar verði skipaðir:



Aðalfulltrúar

Elís Guðmundsson, Hlíðarási

Magnús Kristmannsson, Stekkjarhóli

Petra Marteinsdóttir, Blönduholti

Guðmundur Davíðsson, Melbæ

Brynja Laxdal, Nesvegi



Varafulltrúar

Ernst Verwijnen, Láglendi

Guðbjörg Jóhannesdóttir, Dælisárvegi

Gunnar Leó Helgason, Holti

Arngrímur Arngrímsson, Snorravík

Þórarinn Þorvar Orrason, Standgili



Skipan fulltrúa í Fjölskyldu- og menningarnefnd Kjósarhrepps.

-Gerð er tillaga um að eftirfarandi aðal- og varafulltrúar verði skipaðir:



Aðalfulltrúar

Sigrún Finnsdóttir, Eyjafelli

Andri Jónsson, Eyjum II

Elvar Gunnarsson, Hlíð

Brynja Baldursdóttir, Brúnstöðum

Stefán Bjarnarson, Nesvegi



Varafulltrúar

Ólöf Ósk Guðmundsdóttir, Miðdal

Atli Snær Guðmundsson, Káraneskoti

Lára Kristín Jóhannsdóttir, Snorravík

Jóhanna Bjarnadóttir, Eyrum

Andri Eyvindsson, Eyjatúni



Skipan fulltrúa í Kjörstjórn Kjósarhrepps.

- Gerð er tillaga um að eftirfarandi aðal- og varafulltrúar verði skipaðir:



Aðalfulltrúar

Andrés Óskarsson, Sandslundi, formaður

Guðný G. Ívarsdóttir, Flekkudal, varaformaður

Sigurbjörg Ólafsdóttir, Meðalfelli



Varafulltrúar

Stella Marie Burgess Pétursson, Káranesi

Þorsteinn Bjarnason, Eyrarhlíð

Svava Ásgeirsdóttir, Eyjatúni

Samþykkt samhljóða.
Jóhanna Hreinsdóttir víkur af fundi.

3.Ráðning sveitarstjóra.

2605041

Núverandi sveitarstjóri, Þorbjörg Gísladóttir, gefur ekki kost á sér til áframhaldandi starfa sem sveitarstjóri. Lagt er til að Jóhanna Hreinsdóttir oddviti taki við starfi framkvæmdarstjóra/sveitarstjóra frá 1. ágúst nk. Varaoddvita er falið að ganga frá samningi og leggja fyrir næsta fund sveitarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
Jóhanna Hreinsdóttir kemur aftur inn á fundinn.

4.Tillaga að breytingum á samþykktum um stjórn Kjósarhrepps nr. 6502023 lögð fram til fyrri umræðu.

2605046

Tillaga að breytingum á samþykktum um stjórn Kjósarhrepps lögð fram til fyrri umræðu.
Tillaga að breytingum á samþykktum um stjórn Kjósarhrepps vísað til síðari umræðu.

5.Fundartími sveitarstjórnar.

2605043

Lagt er til að reglulegir fundir sveitarstjórnar verði haldnir í Ásgarði í Kjós annan fimmtudag hvers mánaðar kl. 16:00.
Samþykkt samhljóða.

6.Erindisbréf nefnda.

2606001

Erindirbréf Fjölskyldu- og menningarnefndar annars vegar og hins vegar Skipulags- umhverfis- og samgöngunefndar lögð fram til staðfestingar.
Bæði erindisbréfin samþykkt samhljóða.

7.Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 33

2605003F

  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 33 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd telur að breytingin sé óveruleg í skilningi 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, enda felur hún ekki í sér breytta landnotkun, breytt lóðamörk, breytingu á nýtingarhlutfalli eða breytingu á skipulagsuppdrætti. Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði grenndarkynnt þeim sem taldir eru eiga hagsmuna að gæta í samræmi við ákvæði skipulagslaga. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 33 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytingu á skráningu lóðanna Miðbúð 3 og Miðbúð 4 úr frístundalóðum í íbúðarlóðir, enda er breytingin í samræmi við gildandi deiliskipulag og aðalskipulag Kjósarhrepps. Nefndin leggur jafnframt til að sveitarstjóra, skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa verði falið að annast nauðsynlega eftirfylgni gagnvart HMS, Fasteignaskrá og öðrum hlutaðeigandi aðilum.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar með fyrirvara um að byggingar á lóðunum uppfylli skilyrði byggingarreglurgerðar varðandi íbúðarhúsnæði.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 33 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd telur að um óverulega breytingu á deiliskipulagi sé að ræða, þar sem breytingin tekur aðeins til tveggja þegar skilgreindra íbúðarhúsalóða innan gildandi deiliskipulags. Breytingin felur ekki í sér breytingu á afmörkun skipulagssvæðis, landnotkun, fjölda lóða, aðkomu eða meginforsendum skipulagsins. Þá eru aðrir byggingarskilmálar óbreyttir.
    Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn Kjósarhrepps að samþykkja að tillagan verði grenndarkynnt þeim sem taldir eru eiga hagsmuna að gæta, í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 33 Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd samþykkir umsóknina og er sammála um að falla frá grenndarkynningu sbr. 3.mgr.44.gr Skipulagslaga 123/2010, enda liggi allar meginforsendur fyrir í aðalskipulagi. Byggingarfulltrúa falið að veita byggingarheimild þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist , sbr. 2.3.8. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 33 Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd samþykkir umsóknina með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda skv. 2.mgr. 44.gr. skipulagslaga. Byggingarfulltrúa falið að veita byggingarheimild þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist , sbr. 2.3.8. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 og breyting hefur gengið í gegn á fyrirliggjandi sumarhúsi. Nefndin er sammála um að grenndarkynna fyrir eigendum að Eyrarhlíð L213911, Morastöðum 4 L213910, Spilda úr landi Morastaða 1 L214942 og Morastaða L126374. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 33 Nefndin tekur vel í erindið en bendir á að framkvæmd skal gerð í samráði við landeiganda upprunalands og aðgengi meðfram vatni haldist óhindrað. Bókun fundar Sveitarstjórn þakkar fyrir kynninguna og tekur undir með nefndinni.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 33 Bókun fundar Fundargerð lögð fram til kynningar.

8.Fjölskyldu- og menningarnefnd - 13

2605002F

  • Fjölskyldu- og menningarnefnd - 13 Formaður fór yfir skipulag og hlutverk hvers eins í tengslum við 17. júní. Bókun fundar Fundargerð lögð fram til kynningar.
  • 8.2 2605035 Kátt í Kjós 2026
    Fjölskyldu- og menningarnefnd - 13 Umræður og skipulagning á Kátt í Kjós sem verður haldinn 18. júlí 2026.

9.Frávikagreining 2026

2605039

Sveitarstjóri leggur fram frávikagreiningu fjárhagsáætlunar 2026 til kynningar.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir og þakkar sveitarstjóra kynninguna.

10.Endurskoðað Aðalskipulag Kjósarhrepps 2024?2036 ? staðfesting sveitarstjórnar.

2211004

Lögð er fram til endanlegrar afgreiðslu tillaga að endurskoðuðu Aðalskipulagi Kjósarhrepps 2024-2036, sem nær til alls landsvæðis innan marka sveitarfélagsins. Tillagan samanstendur af skipulagsgreinargerð, umhverfisskýrslu og skipulagsuppdrætti. Jafnframt eru lögð fram drög að svörum við þeim athugasemdum og umsögnum sem bárust á auglýsingatíma tillögunnar.

Tillagan að endurskoðuðu aðalskipulagi var auglýst opinberlega í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tímabilinu frá 10.03.2026 til og með 21.04.2026. Tillagan var jafnframt kynnt nágrannasveitarfélögum og opinberum umsagnaraðilum til umsagnar í samræmi við 30. gr. laganna. Umsagnir og athugasemdir sem bárust á kynningar- og auglýsingatíma hafa verið yfirfarnar og rýndar ítarlega.

Sveitarstjórn Kjósarhrepps samþykkir endurskoðað Aðalskipulag Kjósarhrepps 2024-2036 skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar tillögunni ásamt öllum tilheyrandi málsgögnum til staðfestingar hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS).

Samþykkt samhljóða.

11.Fundargerð 202. fundar Heilbrigðisnefndar Vesturlands ásamt minnisblaði.

12.Fundargerð 998. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Fundi slitið - kl. 18:30.