Fara í efni

Sveitarstjórn

320. fundur 01. júlí 2026 kl. 16:00 stóra fundarsal í Ásgarði
Nefndarmenn
  • Jóhanna Hreinsdóttir (JH) oddviti
  • Sigurþór Ingi Sigurðsson (SIS) varaoddviti
  • Jón Þorgeir Sigurðsson (JÞS) nefndarmaður
  • Þóra Jónsdóttir (ÞJ) nefndarmaður
  • Díana Þorsteinsdóttir nefndarmaður
Starfsmenn
  • Þorbjörg Gísladóttir Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Þorbjörg Gísladóttir Sveitarstjóri
Dagskrá
Oddviti leitar frábrigða og óskar eftir að setja eftirfarandi mál á dagskrá fundarins:
Mál nr. 2606002 Ráðningarsamningur sveitarstjóra 2026-2030.
Mál nr. 2105020 Kjör fulltrúa Kjósarhrepps á aðalfundi Kjósarveitna ehf.
Mál nr. 2105021 Kjör fulltrúa Kjósarhrepps á aðalfundi Leiðarljóss ehf.

Samþykkt samhljóða.

1.Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 34

2606002F

  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 34 Lagðar eru fram tillögur um formann og varaformann Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd.

    Gerð er tillaga um að Elís Guðmundsson verði formaður Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd.

    Gerð er tillaga um að Magnús Ingi Kristmannsson verði varaformaður Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd.

    Tillagan er samþykkt samhljóma.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 34 Erindirbréf Skipulags- umhverfis- og samgöngunefndar lögð fram til staðfestingar.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 34 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði samþykkt og fái lokaafgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 34 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt og henni fylgt eftir í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 34 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt skv. 3. mgr. 43. gr. laganna, með fyrirvara um endanlegt samþykki landeiganda á merkjalýsingu. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 34 Nefndin leggur til við sveitarstjórn að heimilað verði að sótt verði um ofangreinda undanþágu til ráðuneytisins og felur verkefnastjóra eftirfylgni málsins. Í umsögn frá Vegagerð kemur fram að Vegagerðin muni ekki taka þátt í kostnaði vegna þeirra óþæginda sem af nálægð við veginn hlýst, svo sem vegna hávaða eða ryks.

    Nefndin leggur jafnframt til við sveitarstjórn að tillagan verði samþykkt og send til birtingar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga, að fenginni undanþágu ráðherra.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 34 Skipulags- umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir samhljóða og leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lóðarinnar með fyrirvara um samþykki þinglýsts eiganda upprunalands.

    Skipulags- umhverfis- og samgöngunefnd mælist til þess að farið verði í heildar endurskoðun á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 34 Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd samþykkir umsóknina og er sammála um að falla frá grenndarkynningu sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, enda liggi allar meginforsendur fyrir í aðalskipulagi. Byggingarfulltrúa falið að veita byggingarheimild þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist, sbr. 2.3.8. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 34 Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd samþykkir umsóknina með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda skv. 2.mgr. 44.gr. skipulagslaga. Byggingarfulltrúa falið að veita byggingarheimild þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist , sbr. 2.3.8. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012.

    Nefndin er sammála um að grenndarkynna fyrir eigendum Hamrar 14 L126233, Hamrar 13 L126232 og Hamrar 11 L126209, sem og Meðalfelli L221431.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 34 Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd samþykkir umsóknina og er sammála um að falla frá grenndarkynningu sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, enda liggi allar meginforsendur fyrir í aðalskipulagi. Byggingarfulltrúa falið að veita byggingarleyfi þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist, sbr. 2.4.4. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • 1.11 2502011 Eyjatún 18, L211596
    Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 34 Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindi byggingarfulltrúa. Byggingarfulltrúa er heimilað að láta fjarlægja leifar byggingarinnar af lóðinni á kostnað eiganda, enda hafi eiganda áður verið veittur hæfilegur frestur til úrbóta og honum tilkynnt um fyrirhugaðar aðgerðir, í samræmi við ákvæði 2.9.2. gr. byggingarreglugerðar. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.

2.Fjölskyldu- og menningarnefnd - 14

2606001F

Fundargerð lögð fram til kynningar.

3.Rannsóknir Rastar sjávarrannsóknarsetur í Hvalfirði

2501011

Utanríkisráðuneytið óskar eftir umsögn Kjósahrepps um umsókn Rastar sjávarrannsóknarseturs um leyfi til vísindalegra rannsókna í Hvalfirði, sbr. VI. kafla laga nr. 41/1979 um landhelgi, aðlægt belti, efnahagslögsögu og landgrunn.
Umsögn Kjósarhrepps vegna umsóknar um leyfi til vísindarannsókna í Hvalfirði
Vísað er til bréfs ráðuneytisins, dags. 11. júní 2026, þar sem óskað er eftir umsögn Kjósarhrepps vegna umsóknar Rastar sjávarrannsóknaseturs um leyfi til sjávarloftskiptarannsóknar í Hvalfirði.
Kjósarhreppur hefur farið yfir umsóknina og þau ítarlegu gögn sem henni fylgja. Lagt er upp með að markmið rannsóknarinnar sé að afla vísindalegrar þekkingar á möguleikum aukinnar basavirkni sjávar til að auka upptöku koltvísýrings úr andrúmslofti og að rannsóknin sé kynnt sem sjálfstæð, óhagnaðardrifin vísindarannsókn sem ætlað er að varpa ljósi á mögulega loftslagsávinninga og áhrif á súrnun sjávar. Mikilvægt er að hafa í huga að verulegir fjárhagslegir hagsmunir geta falist í rannsóknum sem kynntar eru sem mögulegar „töfralausnir“ við loftslagsvandanum. Af þeim sökum verða stjórnvöld að gæta sérstakrar varúðar og leggja sjálfstætt mat á hvort fyrirhugaðar rannsóknir og aðgerðir standist vísindalega og umhverfislega skoðun. Nauðsynlegt er að greina kjarnann frá hisminu þegar veitt eru leyfi á þeim forsendum að verkefni geti dregið úr áhrifum loftslagsbreytinga, enda kunna slík verkefni jafnframt að hafa í för með sér alvarleg og jafnvel óafturkræf áhrif á aðra þætti náttúrunnar.
Sveitarfélagið viðurkennir engu að síður mikilvægi vísindarannsókna og þeirrar þekkingarleitar sem nauðsynleg er til að takast á við loftslagsbreytingar. Hins vegar telur Kjósarhreppur að þegar um er að ræða íhlutun í náttúrulegt vistkerfi hafsins með losun efna eins og vítissóda, þótt um takmarkað magn og afmarkað svæði sé að ræða, verði að gera ríkar kröfur um að áhrif framkvæmdarinnar séu nægilega þekkt og að samfélagsleg sátt ríki um framkvæmdina áður en leyfi er veitt. Eins og flestum er ljóst sem til þekkja er Hvalfjörðurinn undir miklu álagi nú þegar vegna uppbyggingar á Grundartanga.
Þrátt fyrir að umsækjandi leggi fram gögn um vöktun, öryggisráðstafanir og takmarkað umfang rannsóknarinnar telur sveitarfélagið að enn ríki veruleg óvissa um hugsanleg áhrif rannsóknarinnar á vistkerfi Hvalfjarðar. Í umsókninni kemur fram að vísindaleg óvissa sé enn til staðar um viðbrögð umhverfisins við aðferðum af þessu tagi og að markmið rannsóknarinnar sé meðal annars að afla þekkingar um umhverfisöryggi aðferðarinnar. Af því leiðir að áhrifin eru ekki að fullu þekkt fyrirfram.
Hvalfjörður er einstakt og verðmætt náttúrusvæði sem hefur mikið gildi fyrir lífríki, útivist, ferðaþjónustu og aðra nýtingu náttúruauðlinda. Fjörðurinn er jafnframt mikilvægur hluti af náttúru- og menningararfi nærsamfélaganna við hann. Öll atvinnustarfsemi í Kjósarhreppi byggir á óspilltri náttúru og þeirri ímynd sem henni fylgir. Að mati Kjósarhrepps ber að sýna sérstaka varfærni þegar fyrirhugaðar eru rannsóknir sem fela í sér breytingar á efnafræðilegum eiginleikum sjávar í slíkum firði, jafnvel þótt rannsóknin sé tímabundin og framkvæmd á litlum skala.
Sveitarfélagið telur að beita beri varúðarreglu umhverfisréttar við meðferð málsins. Þegar óvissa er fyrir hendi um möguleg áhrif á náttúru og lífríki ber að leggja verndarsjónarmið til grundvallar þar til fyrir liggur fullnægjandi þekking á áhrifum slíkrar starfsemi. Efnislega gerir umsagnaraðili kröfu um að ráðuneytið hafni því að veita leyfisbeiðanda umbeðið leyfi. Þá er gerð sú krafa að ef umbeðið leyfi verði veitt, að ráðuneytið geri það þá með því skilyrði að leyfisbeiðandi setji tryggingu fyrir tjóni sem kann að leiða af rannsókn hans á lífríki Hvalfjarðar.
Ekki verður séð að breyting hafi orðið á regluverki í kringum leyfisveitingar til slíkra rannsókna og vísar sveitarfélagið í fyrri úrskurð ráðuneytisins þar sem segir:
„Án skýrs lagaramma og stefnu stjórnvalda um loftslagsverkfræðilegar aðgerðir skortir fullnægjandi lagagrundvöll, þ.m.t. um eftirlitsheimildir, fyrir því að veita leyfi fyrir slíkum rannsóknum. Þá er erfitt að sætta ólík sjónarmið vegna framkvæmdar slíkra rannsókna án skýrs ramma um þær. Vilji ríkisstjórnarinnar stendur til þess að móta slíka stefnu og ramma með það að markmiði að skýra betur heimilar aðferðir, eftirlit stjórnvalda og framkvæmd.“
Mál þetta lýtur að sömu eða sambærilegri beiðni leyfisbeiðanda og ráðuneytið hefur áður tekið afstöðu til og synjað í máli nr. UTN24050208 með ákvörðun sem kynnt var leyfisbeiðanda 5. maí 2025. Engin ný gögn hafa verið lögð fram sem gefa tilefni til endurupptöku málsins og leyfisbeiðandi hefur hvorki fært fram nýjar málsástæður né sýnt fram á með haldbærum rökum að fyrri afstaða ráðuneytisins hafi verið efnislega eða lagalega röng. Skilyrði fyrir endurupptöku samkvæmt 1. eða 2. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 teljast því ekki uppfyllt og er ráðuneytinu af þeim sökum rétt að vísa hinni nýju beiðni frá.
Með vísan til framangreinds og þeirra sjónarmiða sem Kjósarhreppur hefur áður komið á framfæri vegna sambærilegrar umsóknar leggst sveitarfélagið gegn því að leyfi verði veitt til fyrirhugaðrar sjávarloftskiptarannsóknar í Hvalfirði.

Sveitarstjórn staðfestir umsögnina samhljóða og felur sveitarstjóra að senda hana til utanríkisráðuneytisins.

4.Kjör fulltrúa á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga kjörtímabilið 2026-2030

2605011

Samband íslenskra sveitarfélaga óskar eftir tilnefningum til aðal- og varafulltrúa á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga kjörtímabilið 2026-2030.
Lagt er til að Sigurþór I. Sigurðsson verði aðalfulltrúi og Díana Þorsteinsdóttir verði varafulltrúi.

Sveitarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.

5.Kosning fulltrúa í fulltrúaráð Eignarhaldsfélag Brunabótafélags Íslands.

2605027

Vegna breytinga á smþykktum Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands, óskar félagið eftir tilnefningum í fulltrúaráði félagsins.
Lagt er til að Þóra Jónsdóttir verði aðalfulltrúi og Díana Þorsteinsdóttir verði varafulltrúi.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tilnenfingarnar.
Jóahanna Hreinsdóttir víkur af fundi.

6.Ráðningarsamningur sveitarstjóra 2026-2030

2606002

Lagður er fram til staðfestingar ráðningarsamningur við Jóhönnu Hreinsdóttur um starf sveitarstjóra.
Seitarstjórn staðfestir samninginn samhljóða.
Jóhanna Hreinsdóttir kemur aftur inn á fundinn.

7.Umsókn um leyfi til reksturs Gististaðir í Flokkur II - B Stærra gistiheimili Heiti staðar S

2605036

Lögð er fram umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu um umsókn Eyjadals ehf um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II- B stærra gistiheimili að Stóru Skál í Kjós.
Hvorki öryggis- né lokaúttekt hefur farið fram á umræddu húsnæði, af þeim sökum leggst sveitarstjórn gegn því að heimila rekstur gististaðar að Stóru Skál.

Samþykkt samhljóða að hafna beiðninni.

8.Tillaga að breytingum á samþykktum um stjórn Kjósarhrepps nr. 6502023 lögð fram til seinni umræðu.

2605046

Lögð er fram til síðari umræðu tillaga að breytingum á samþykktum um stjórn Kjósarhrepps.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi breytingar á samþykkt um stjórn Kjósarhrepps og felur sveitarstjóra að birta í Stjórnartíðindum.

9.Fjallskilaboð í Kjósarheppi 2026

2606024

Aðalhaustleitir skulu vera tvennar. Þá skal smala allt land þar sem fénaður hefur gengið á sumarbeit, sem mest á sama tíma. Sérstaklega skal þess gætt að göngur fari fram samtímis á samliggjandi leitarsvæðum svo að eigi verði misgöngur.
Fjallskil til lögrétta í Kjósarhreppi á þessu hausti verða á eftirtöldum dögum í Kjósarrétt. 1. rétt verður sunnudaginn 20. september kl:15:00, 2. rétt verður sunnudaginn 4. október kl. 15:00. Samkvæmt 10. gr. fjallskilasamþykktar fyrir Landnám Ingólfs Arnarsonar nr.775/2020 segir: Allir, sem jörð hafa til ábúðar eða umráða, og allir sem sauðfé eiga eða hafa undir höndum eru fjallskilaskyldir samkvæmt fyrirmælum sveitarstjórna eða fjallskilanefnda. Hver maður er fjallskilaskyldur í því sveitarfélagi þar sem hann notar upprekstrarland fyrir fé sitt eða á land. Til leita í hverju upprekstrarlandi ber einkum að skipa þá er það nýta. Samkvæmt 11. gr. fjallskilasamþykktar fyrir Landnám Ingólfs Arnarsonar nr.775/2020 segir: Aðalhaustleitir skulu vera tvennar. Þá skal smala allt land þar sem fénaður hefur gengið á sumarbeit, sem mest á sama tíma. Sérstaklega skal þess gætt að göngur fari fram samtímis á samliggjandi leitarsvæðum svo að eigi verði misgöngur. Skulu leitarstjórar hafa samráð um þá tilhögun sem best er talin henta til að tryggja samræmingu við smölun.

Helgi Guðbrandsson, Hækingsdal, sér um smölun á landi Stóra-Botns, sunnan varnargirðingar. Réttarstjóri í Kjósarrétt verður Sigurður Ásgeirsson, Hrosshóll. Marklýsingarmenn í Kjósarrétt verða Dóra S. Gunnarsdóttir, Hækingsdal og Þorbjörg Skúladóttir Írafelli. Í útréttir fara eftirtaldir: 1. Þingvallarétt Helgi Guðbrandsson, Hækingsdal. 2. Þingvallarétt, Helgi Guðbrandsson, Hækingsdal.

Samþykkt samhljóða.

10.Kjör fulltrúa Kjósarhrepps á aðalfundi Leiðarljós ehf

2105021

Lagt er til að Sigurþór I. Sigurðsson verði aðalfulltrúi og Jón Þorgeir Sigurðsson verði varafulltrúi.
Samþykkt samhljóða.

11.Kjör fulltrúa Kjósarhrepps á aðalfundi Kjósarveitna ehf

2105020

Lagt er til að Sigurþór I. Sigurðsson verði aðalfulltrúi og Jón Þorgeir Sigurðsson verði varafulltrúi.
Samþykkt samhljóða.

12.Ályktun vegna nýrrar reglugerðar mennta- og - og barnamálaráðuneytisins sem gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um ábyrgð á þjónustu við börn með fjölþættan vanda.

2606025

Vísað er til tilkynningar í samráðsgátt, dags. 16. apríl sl., þar sem óskað er eftir umsögnum um drög að reglugerð um málsmeðferð vegna ákvörðunar um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins. Drögin fjalla m.a. um skilgreiningu barna með fjölþættar stuðningsþarfir, upphaf og vinnslu mála hjá sérfræðingateymi, ákvörðun um vistun barna í sérhæft úrræði á

vegum ríkisins og endurmat á þörf fyrir vistun í slík úrræði. Mál nr. S-74/2026
„Sveitarstjórn Kjósarhrepps lýsir yfir þungum áhyggjum af nýrri reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins sem gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um ábyrgð á þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Með reglugerðinni hefur ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á hópnum sem skilur þannig eftir ábyrgð og kostnað hjá sveitarfélögum sem á grundvelli samkomulagsins á heima hjá ríkinu.

Sveitarstjórn telur breytinguna óásættanlega, án fullnægjandi faglegra raka og fela í sér alvarlegan trúnaðarbrest af hálfu ríkisins gagnvart sveitarfélögum. Sveitarstjórn Kjósarhepps skorar er á ráðuneytið að afturkalla reglugerðina og taki þá ábyrgð og skuldbindingu sem samið var um.

13.Fundargerðir 994., 995. og 996. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

14.Fundargerðir 999 og 1000. funda stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

15.Fundargerðir 627 og 628. funda stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfðuborgarsvæðinu.

2606029

Fundargerðir lagðar fram til kynningar.

16.Loftgæðamælingar í Kjósarhreppi, erindi til Umhverfis og orkustofnunar.

2606017

Sveitarstjóri fyrir hönd sveitarstjórnar Kjósarhrepps, sendi inn erindi til Umhverfis - og orkustofnunar þar sem þess var farið á leit að settir yrðu upp síritandi loftgæðamælar í Kjósarhreppi í sumar á meðan á ræsingu katla í álverinu stendur þar sem rannsóknir hafa sýnt að við ræsingu verður mun meiri flúormengun í lofti en annars. Viðbrögð Umhverfis- og orkustofnunar liggja nú fyrir og eru lögð fram til kynningar ásamt erindi frá Kjósahreppi.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið.