Fara í efni

Sveitarstjórn

321. fundur 10. september 2026 kl. 16:00 - 18:30 stóra fundarsal í Ásgarði
Nefndarmenn
  • Jóhanna Hreinsdóttir (JH) oddviti
  • Sigurþór Ingi Sigurðsson (SIS) varaoddviti
  • Jón Þorgeir Sigurðsson (JÞS) nefndarmaður
  • Þóra Jónsdóttir (ÞJ) nefndarmaður
  • Díana Þorsteinsdóttir nefndarmaður
Starfsmenn
  • Olgeir Olgeirsson ritari
Fundargerð ritaði: Jóhanna Hreinsdóttir Sveitarstjóri
Dagskrá
Oddviti leitar frábrigða og óskar eftir að setja eftirfarandi mál á dagskrá fundarins:
Mál nr. 2609010 Breyttur fundartími sveitarstjórnar í október 2026.

Mál nr. 2305016 Stóra Skál L211010 umsókn um byggingarleyfi - Stóra Skál 1.

1.Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 35

2608002F

  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 35 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd staðfestir fyrri afstöðu sína frá 25. júní 2026 og leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt. Skipulagsfulltrúa verði falið að annast áframhaldandi málsmeðferð og gildistöku deiliskipulagsins í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 35 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að breyting á deiliskipulagi verði samþykkt. Skipulagsfulltrúa verði falið að senda samþykkta breytingu til HMS og annast birtingu auglýsingar um gildistöku hennar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 35 Athugasemdin gefur samkvæmt framangreindu ekki tilefni til breytinga á tillögunni. Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt óbreytt. Skipulagsfulltrúa verði falið að tilkynna þeim sem gerðu athugasemd um niðurstöðu sveitarstjórnar, senda samþykkta breytingu til HMS og annast birtingu auglýsingar um gildistöku hennar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 43. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 35 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd frestar endanlegri afgreiðslu tillögunnar þar til fyrir liggja endanlegar upplýsingar frá Minjastofnun Íslands um staðsetningu og afmörkun minja og friðhelgunarsvæða þeirra, afstaða Heilbrigðiseftirlits Vesturlands til afmörkunar og skilmála brunnsvæðis, þinglýstur samningur um aðkomu um Eyrarkotsveg og snúningssvæði, auk staðfestingar á undanþágu frá ákvæðum d-liðar gr. 5.3.2.5 í skipulagsreglugerð vegna fjarlægðar byggingarreita frá Hvalfjarðarvegi.

    Umsækjanda er falið að uppfæra skipulagsgögnin til samræmis við framangreint og leggja þau að nýju fyrir nefndina. Verði breytingar frá auglýstri tillögu taldar grundvallarbreytingar skal taka afstöðu til þess hvort auglýsa þurfi tillöguna að nýju.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 35 Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd frestar málinu og felur verkefnastjóra að ræða við umsækjanda um leiðréttingu á merkjalýsingu til samræmis við gildandi deiliskipulag. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 35 Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd frestar málinu þar til liggur fyrir staðfestur deiliskipulagsuppráttur þar sem sýnt er staðsetning borholu, lagnasvæði og kvaðir. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 35 Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd gerir ekki athugasemd og leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lóðarinnar með fyrirvara um að fyrir liggi samþykki þinglýstra eiganda upprunalands og samþykki Vegagerðar er varðar tengingu inn á Eyrarfjallsveg 460. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 35 Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd gerir ekki athugasemd og leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lóðarinnar með fyrirvara um að fyrir liggi samþykki þinglýstra eiganda upprunalands. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 35 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlagða umsókn og teikningar að breytingum innanhúss og útisvæðis að Þúfu (L126493) með vísan til laga um mannvirki nr. 160/2010. Byggingarfulltrúa er falið að gefa út byggingarleyfi þegar lögboðnum skilyrðum er fullnægt, þ.m.t. skráningu ábyrgðaraðila og greiðslu tilskilinna gjalda. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 35 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd frestar málinu.

    Eftirfarandi gögn þurfa berast áður en erindið er tekið fyrir aftur:

    1.
    Lagfæring hönnunargagna: Hönnuður leggi fram uppfærða afstöðumynd og greinargerð þar sem stærð, afmörkun og nýtingarhlutfall lóðarinnar eru samræmd og rétt fram sett.
    2.
    Lágmarksstærð lóðar skv. aðalskipulagi: Fyrir liggi staðfesting á að landeignin uppfylli nýtingarhlutfall íbúðarhúsalóða 0.05 samkvæmt gildandi aðalskipulagi með samþykktri merkjalýsingu og leiðréttingu í landskránigarkerfi HMS.

    Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd vekur athygli á að byggingarfulltrúa er heimilt að leggja á stjórnvaldssekt á framkvæmdir sem eru byggingarleyfisskyldar án þess að hafa fengið byggingarleyfi skv. 9. gr. laga um mannvirki 160/2010.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 35 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlögð byggingaráform með fyrirvara um grenndarkynningu skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Byggingarfulltrúa er falið að grenndarkynna erindið fyrir aðliggjandi lóðarhöfum. Berist ekki athugasemdir innan tilskilins frests er byggingarfulltrúa heimilað að gefa út byggingarleyfi að uppfylltum skilyrðum laga um mannvirki nr. 160/2010.
    Grenndarkynna þarf fyrir lóðunum Hálsakot L213972 og Þúfukot L126494.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 35 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd setur sig ekki upp á móti endurnýjun bátaskýlanna við Flekkudalsveg.
    Nefndin tekur fram að endurnýjunin felur í sér mikla bót á öryggi svæðisins, þar sem eldri mannvirki voru orðin varasöm og hætta á foktjóni. Þá er framkvæmdin til mikillar prýði fyrir umhverfið og sveitarfélagið í heild, í samræmi við fyrri fordæmi sveitarfélagsins um endurbyggingu bátaskýla við Hjarðarholt.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 35 Nefndin leggur til við sveitarstjórn að fyrirliggjandi umsögn verði samþykkt og að þess verði krafist að framkvæmdin verði háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.

    Jafnframt verði áréttað að ekki verði gert ráð fyrir þjónustu, tengingum, vetrarþjónustu eða kostnaðarþátttöku Kjósarhrepps nema að undangenginni sérstakri ákvörðun sveitarfélagsins og eftir atvikum skriflegu samkomulagi. Framkvæmdaraðili beri kostnað af þeim rannsóknum, innviðabótum, mótvægisaðgerðum og vöktun sem framkvæmdin kallar á, eftir því sem lög heimila.
    Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir umsögn samhljóða.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 35 Verkefnastjóra er falið að uppfæra lýsinguna í samráði við skipulagsráðgjafa áður en hún verður kynnt almenningi og send til umsagnar Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, Vegagerðarinnar, Náttúruverndarstofnunar, Náttúrufræðistofnunar, Minjastofnunar Íslands, Fiskistofu, Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, viðkomandi veiðifélags, landeiganda og annarra hagsmunaaðila eftir því sem við á. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 35 Bókun fundar Fundargerð lögð fram til kynningar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 35 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að hafinn verði undirbúningur að innleiðingu á nýju umsóknar- og umsýslukerfi HMS fyrir byggingarleyfi.

    Verkefnastjóra er falið að hafa samband við HMS og þjónustuaðila málaskrárkerfis sveitarfélagsins, staðfesta stöðu Straums, X-Road, og afla kostnaðar- og tímaáætlunar vegna nauðsynlegra kerfistenginga og aðlögunar.

    Jafnframt verði unnin innleiðingaráætlun sem taki til verkferla, skjalavörslu, aðgangsstýringar, prófana, fræðslu starfsfólks og upplýsingagjafar til umsækjenda. Miðað verði við að Kjósarhreppur geti tekið kerfið í notkun fyrir árslok 2026.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 35 Bókun fundar Fundargerð lögð fram til kynningar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 35 Lagt fram til kynningar og nefndin áskilur sér rétt til umsagnar á síðari stigum. Bókun fundar Sveitarstjórn sendir faghópnum eftirfarandi svar:

    Sveitarstjórn Kjósarhrepps leggst gegn því að virkjunarhugmyndirnar Mosfellsheiðarvirkjun I og II verði settar í orkunýtingarflokk í verndar- og orkunýtingaráætlun að svo stöddu. Telur sveitarstjórn að forsendur séu til þess að hugmyndirnar falli í biðflokk á grundvelli 1. mgr. 5. gr. laga nr. 48/2011.

    Þótt fyrirhuguð mannvirki séu staðsett utan sveitarfélagamarka Kjósarhrepps er ljóst að landsvæði hreppsins fellur undir áhrifasvæði framkvæmdanna í skilningi 1. tölul. 2. mgr. 2. gr. laga nr. 48/2011. Enn ríkir veruleg óvissa um þverlæg áhrif framkvæmdanna á vatnsvernd og vatnafar, landslag, óbyggð víðerni, lífríki, útivist og hagsmuni íbúa og nærsamfélags í Kjósarhreppi.

    Sveitarstjórn telur nauðsynlegt að áður en ákvörðun um flokkun verður tekin fari fram heildstætt mat á uppsöfnuðum og svæðisbundnum áhrifum virkjananna sem nái til alls áhrifasvæðisins, auk þess sem sýnt verði fram á raunverulegan ávinning þeirra fyrir orkuöryggi.

    Kjósarhreppur áskilur sér fullan rétt til að koma að frekari umsögnum og gæta hagsmuna sveitarfélagsins eftir því sem frekari gögn og nánari útfærsla framkvæmdanna liggja fyrir

    Samþykkt samhljóða.

2.Aðgerðaráætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðinu 2026-2030

2608008

Frá SSH. dags. 07.07.2026, lögð fram til samþykktar aðgerðaáætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins 2026-2030. Óskað er eftir því að áætlunin verði tekin til efnislegrar umræðu, afgreiðslu og staðfestingar á vettvangi sveitarfélagsins. Til upplýsinga er einnig meðfylgjandi minnisblað til stjórnar SSH dagsett 16. júní 2026. Þá er þess óskað að við fjárhagsáætlunargerð vegna ársins 2027 verði tekið tillit til þess kostnaðar sem áætlað er að leggist á sveitarfélagið, sbr. 4. gr. samstarfssamnings sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um svæðisbundið farsældarráð á höfuðborgarsvæðinu.
Kjósarhreppur samþykkir samhljóða aðgerðaáætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins 2026 - 2030.

3.Umsókn um leyfi til reksturs Gististaðir í Flokkur II - B Stærra gistiheimili - Þúfa

2608007

Lögð er fram umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu um umsókn Birch Capital ehf u leyfi til reksturs gististaðar í flokki II- B Stærri gistiheimili á Þúfu Kjós.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.

4.Umsókn um leyfi til reksturs Gististaðir í Flokkur II - C - Minni gistiheimili í fl. II

2609004

Lögð er fram umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu um umsókn Spa hotels ehf um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II- C Minna gistiheimili á Sandsárbakka 11 Kjós.
Samkvæmt aðalskipulagi Kjósarhrepps 2017-2029 er ekki heimilt að vera með rekstur gistiheimilis í flokki II á frístundalóð. Sveitarstjórn hafnar því beiðninni.
Samþykkt samhljóða.

5.Umsókn um greiðslur vegna námsvistar utan lögheimilis-Leikskólar

2608011

Lögð er fram umsókn um greiðslur námsvistar í grunnskóla fyrir utan lögheimilissveitarfélag.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða umsóknina.

6.Reglur um þóknun kjörinna fulltrúa Kjósarhrepps

2311025

Lögð er fram tillaga að uppfærðum reglum um þóknun til kjörinna fulltrúa Kjósarhrepps. Tilgangur tillögunnar er að uppfæra launataxta kjörstjórnar þar sem það hefur ekki verið gert frá árinu 2018.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða breytingar á reglunum og taka þær gildi frá og með 1. ágúst 2026.

7.Breyttur fundartími sveitarstjórnar í október 2026.

2609010

Lagt er til að vegna fjármálaráðstefnu sveitarfélaga sem fer fram dagana 8.-9. október 2026 verði næsti reglulegi fundur sem vera átti 8. október færður fram um einn dag og haldinn 7. október.
Samþykkt samhljóða.

8.Frávikagreining 2026

2605039

Sveitarstjóri leggur fram frávikagreiningu fjárhagsáætlunar 2026 til kynningar.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir og þakkar sveitarstjóra og aðalbókara kynninguna.

9.Fundargerð Aðalfundar Kjósarveitna 25. ágúst 2026

2608025

Fundargerð lögð fram til kynningar.

10.Fundargerð Aðalfundar Leiðarljós 25. ágúst 2026

2608026

Fundargerð lögð fram til kynningar.

11.Fundargerð 95. fundar stjórnar Kjósarveitna

2609007

Fundargerð lögð fram til kynningar.

12.Fundargerð 32. fundar Leiðarljóss ehf

2609008

Fundargerð lögð fram til kynningar.

13.Fundargerð 630. funda stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfðuborgarsvæðinu

2608020

Fundargerð lögð fram til kynningar.

14.Fundargerð 631. funda stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfðuborgarsvæðinu

2608021

Fundargerð lögð fram til kynningar.

15.Fundargerð 1001 fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarféalga

2609006

Fundargerð lögð fram til kynningar.

16.Drög að stefnumörkun Sambands Íslenskra sveitarfélaga til næstu fjögurra ára.

2609009

Stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026-2030 lögð fram.
Drög að stefnumörkun lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:30.