Sveitarstjórn
Dagskrá
1.Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 36
2609003F
-
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 36 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt með fyrirvara um endanlega undirritaða merkjalýsingu / samþykki landeiganda.
Nefndin bendir jafnframt á að gildandi deiliskipulag svæðisins frá árinu 1995 er orðið gamalt og óljóst og telur brýnt að ráðist verði í heildstæða uppfærslu og endurskoðun á deiliskipulagi fyrir frístundasvæði F25 til samræmis við núgildandi skipulagsáætlanir. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar. -
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 36 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd bendir á að samkvæmt Aðalskipulagi Kjósarhrepps 2024-2036 (kafla 4.2 og 5.1.1) er lögð rík áhersla á að varðveita gott ræktunarland í flokki L1 og L2 til matvælaframleiðslu og að frístundabyggð verði aðeins skipulögð utan slíks ræktunarlands. Þá kveða ákvæði aðalskipulags um landskipti (kafli 5.1.2) á um að landi í flokki L1 og L2 skuli almennt ekki ráðstafað með óafturkræfum hætti til annarra nota, svo sem til frístundabyggðar.
Með vísan til framangreindra ákvæða og stefnu aðalskipulags um vernd ræktunarlands í flokki L2 tekur nefndin neikvætt í erindið / hafnar fyrirspurninni.
Nefndin bendir jafnframt á að telji landeigandi að flokkun landsins sé ekki í samræmi við raunveruleg gæði þess er honum heimilt, sbr. kafla 5.1.1 í aðalskipulaginu, að afla óháðs sérfræðiálits á sviði landgæða til grundvallar endurmati sveitarstjórnar á flokkun landsins.
Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar. -
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 36 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd fagnar því að fyrir liggi leiðrétt merkjalýsing og tillaga að breytingu á deiliskipulagi sem tekur tillit til athugasemda lóðarhafa Eyjavíkur 4 og tryggir óbreytt vegstæði. Nefndin felur starfsmanni að vinna áfram að sáttum á grundvelli framlagðra gagna og kalla eftir skriflegu samþykki hlutaðeigandi aðila.
Að fengnu samþykki nágranna og formlegri afturköllun kæru til ÚUA leggur nefndin til við sveitarstjórn að hin leiðrétta deiliskipulagsbreyting verði staðfest og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Náist ekki sátt í málinu eða dragist afturköllun kæru, leggur nefndin til við sveitarstjórn að fyrri samþykkt um deiliskipulagsbreytinguna verði formlega afturkölluð skv. 25. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ÚUA og málsaðilum tilkynnt um það, og hin uppfærða tillaga tekin til nýrrar lögmætrar málsmeðferðar og grenndarkynningar í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga.
Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar. -
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 36 Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
2.Fjölskyldu- og menningarnefnd - 14
2609002F
Lagt fram til kynningar.
-
Fjölskyldu- og menningarnefnd - 14 Farið yfir framkvæmd á Kátt í Kjós 2026 og rætt um hátíðina á næsta ári. Umræður um að stækka hátíðina og koma inn með nýja viðburði. Ákveðið að nota veturinn til að vinna verkefnið áfram.
-
Fjölskyldu- og menningarnefnd - 14 Farið yfir verkefni vetrarins. Ákveðið að halda litlu jól fyrir leikskóla- og grunnskólabörn 23. nóvember, aðventumarkað í Félagsgaði 5. desember og þrettándabrennu miðvikudaginn 6. janúar. Einnig var farið yfir forsendur fjárhagsáætlunar er snúa að nefndinni.
3.Álagning gjalda 2027 og aðrar forsendur fjárhagsáætunar 20267
2610009
Tekin er til umfjöllunar og ákvörðunar álagning gjalda og aðrar forsendur fjárhagsáætlunar 2027.
Álagning fasteignaskatts í Kjósarhreppi 2027
Fasteignagjöld skiptast á níu gjalddaga frá 1. mars til 1. nóvember. Eindagi fasteignagjalda er þrjátíu dögum eftir gjalddaga og fellur allur skattur ársins í gjalddaga ef vanskil verða. Sé fjárhæð fasteignagjalda undir kr. 40.000 er gjalddagi þeirra 1. mars.

Sveitarstjórn samþykkir að álögð fasteignagjöld í Kjósarhreppi 2027 verði með eftirfarandi hætti.
Fasteignaskattur:
A-flokkur
0,28 % af fasteignamati húss og lóðar
B-flokkur
1,32 % af fasteignamati húss og lóðar
C-flokkur
0,85 % af fasteignamati húss og lóðar
Afsláttur af fasteignaskatti hjá elli- og örorkulífeyrisþegum í Kjósarhreppi
Fasteignaskattur af íbúðarhúsnæði í eigu tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega í Kjósarhreppi, sem þeir nýta sjálfir og eiga þar lögheimili, skal lækkaður eða felldur niður samkvæmt heimild í 4. mgr. 5.gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga.
Veittur verður afsláttur af fasteignaskatti til elli- og örorkulífeyrisþega, sem eiga lögheimili í og eru þinglýstir eigendur viðkomandi fasteignar. Miðast afslátturinn við eftirfarandi tekjumörk liðins árs, sbr. álagningu skattstjóra.
Tekjutengdur afsláttur elli- og örorkuþega álagningarárið 2027
Sjá nánar um afslætti til elli- og örorkuþega í viðhengi með fundargerð og á heimasíðu sveitarfélagsins.
Reglur um tekjutengdan afslátt af fasteignaskatti hjá elli- og örorkulífeyrisþegum í Kjósarhreppi má finna á heimasíðu sveitarfélagsins.
Heimgreiðslur til foreldra ungbarna
Heimgreiðsla til foreldra ungbarna verður frá 1. janúar 2027 kr. 155.000-
Náms- og ferðastyrkur framhaldsskólanema.
Náms- og ferðastyrkur framhaldsskólanema verður frá 1. janúar 2027 - kr. 75.000-
Frístundastyrkir
Styrkur kr. 85.000 fyrir allt skólaárið, fyrir aldurshópinn 3-18 ára.
Eftirtaldar gjaldskrár hækka frá 1. janúar 2027 samkvæmt áætlaðir verðlagsvísitölu Hagstofu Íslands fyrir árið 2027 í október 2026.
Dagforeldrar- Börn eldri en 13 mánaða.
Dagforeldrar - Börn yngri en 13 mánaða.
Eftirtaldar gjaldskrár eru gefnar út af Reykjavíkurborg og hækka frá 1. janúar 2027 samkvæmt ákvörðun borgarstjórnar
Gjaldskrá Klébergsskóla
Gjaldskrá leikskólans Bergs
Gjaldskrá tónlistarskólans á Kjalarnesi
Frístundaheimili eftir skóla
Sveitarstjórn samþykkir tillögu að álagningu gjalda fyrir árið 2027 samhljóða.

4.Ályktun frá landsþingi íslenskra sveitarfélaga
2610013
Á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga var samþykkt áskorun um að um að sveitarfélögin sýni ábyrgð gagnvart stöðu efnahagsmála og taki virkan þátt í að bæta stöðuna. Þingið lýsti yfir vilja sínum til lækkunar verðbólgu og vaxta með því að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% á árinu 2027. Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi og ríkisvaldið og stofnanir í eigu þess taki þátt í sameiginlegu átaki og takmarki með sambærilegum hætti hækkanir á gjaldskrám og álögum sem hafa bein áhrif á heimilin. Með því leggja allir sitt af mörkum við að skapa sátt í samfélaginu.
Sveitarstjórn Kjósarhrepps tekur undir ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi gjaldskrár og breytingar á þeim árið 2027 og mun leggja sitt af mörkum til þess sameiginlega átaks sem þar er kallað eftir.
5.Þjóðarsátt um verðstöðugleika - Erindi frá Starfsgreinasambandinu
2609013
Lagt fram erindi frá Starfgreinasambandi Íslands (SGS) varðandi stöðu efnahagsmála og stöðu á vinnumarkaði í ljósi hárrar verðbólgu og vaxta. Óskað er eftir svari frá Kjósarhreppi um hvort sveitarfélagið sé reiðubúið að taka þátt í þjóðarsátt um verðstöðuleika og sjá til þess að gjaldskrár sveitarfélagsins hækki ekki meira en um 2,5 % þar sem eftir lifir gildandi kjarasamninga.
Sveitarstjórn þakkar fyrir erindið og tekur undir mikilvægi þess að sveitarfélög leggi sitt af mörkum til að stuðla að verðstöðugleika og bættum kaupmætti heimila.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að svara erindinu.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að svara erindinu.
6.Endurhæfum Reykjalund - ósk um stuðning við uppbyggingu Reykjalundar
2609015
Samtökin Hollvinir Reykjalundar og RÚV stóðu fyrir mikilvægri landssöfnun fyrir brýnni uppbyggingu húsakosts Reykjalundar föstudaginn 2. október 2026. Meðal annars var safnað fyrir endurbyggingu á sjúkraþjálfunarálmu. Húsakostur Reykjalundar er úr sér genginn og viðhaldsþörf er mikil. Fjölmörgum rýmum hefur verið lokað vegna bágs ástands húsnæðis og það hamlar starfseminni.
Óskað er eftir fjárhagsstuðningi til uppbyggingar á Reykjalundi.
Óskað er eftir fjárhagsstuðningi til uppbyggingar á Reykjalundi.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita 500.000 kr. til Reykjalundar.
7.Beiðni um fjárstuðning frá Bjarkarhlíð - miðstöð fyrir þolendur ofbeldis
2609016
Bjarkarhlíð- miðstöð fyrir þolendur ofbeldis hefur verið starfrækt frá 2. mars 2017 og er samstarfsverkefni félags-og húsnæðismálaráðuneytis, dómsmálaráðuneytis, Reykjavíkurborgar, lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Stígamóta, Kvennaathvarfsins og Kvennaráðgjafarinnar. Bjarkarhlíð veitir samþætta, þverfaglega og gjaldfrjálsa þjónustu fyrir þolendur ofbeldis af öllum kynjum, óháð búsetu, með það að markmiði að tryggja aðgengi að nauðsynlegri þjónustu á einum stað, með öryggi þolenda að leiðarljósi. Óskað er eftir að Kjósahreppur styrki starfsemi Bjarkarhlíðar og líti á miðstöðina sem mikilvæga viðbót við þá þjónustu sem sveitarfélagið getur boðið íbúum sínum sem hafa orðið fyrir ofbeldi.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita 100.000 kr. til Bjarkarhlíðar.
8.Afreksstyrkur fyrir ungt íþróttafólk
2610010
Umsókn um styrk vegna þátttöku Lilly Marije Verwijnen í landsliðsverkefni með íslenska U-18 landsliðinu í blaki 12.-15. október 2026 í Danmörku.
Sótt er um 190.000 kr. styrk.
Sótt er um 190.000 kr. styrk.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita Lilly Marije Verwijnen 190.000 kr. styrk.
9.Samfélagsstyrkur Kjósarhrepps
2609011
Félag íbúa og sumarhúsaeigenda við Eyjatún sækir um styrk til að kaupa á hringlaga útiborði með bekkjum sem staðsett verður miðsvæðis, útskornu furuskilti með heiti
svæðisins og upplýsingum um skoðanir og úttektir, faglegra skoðana og úttekta á leiksvæði ásamt
kaup á ráðgjöf og/eða vinnu við undirbúning göngustígs/göngubrúar að vatni til að auka aðgengi að
leiksvæði.
Sótt er um 500.000 kr. styrk.

Umsókn er synjað á þeim forsendum að styrkur var áður veittur vorið 2026. Sveitarstjórn hvetur umsækjanda um að senda inn umsókn um samfélagsstyrk á nýju ári.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
10.Samfélagsstyrkur Kjósarhrepps - Reynivallasókn
2610001
Reynivallasókn í Kjós sækir um styrk frá Kjósarhreppi vegna byggingar aðstöðuhúss eða þjónustuhúss við Reynivallakirkju.
Í húsinu verða tvö salerni, annað með aðgengi fyrir hreyfihamlaða, aðstaða til fataskipta, geymsla o.fl. Ekkert aðgengi er að salerni á Reynivöllum.
Nokkuð er um skírnir, brúðkaup og jarðafarir í kirkjunni og þá er nauðsynlegt að hafa aðgang að svona húsi.
Sótt er um 3.000.000 kr. styrk.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita verkefninu 1.000.000 kr. styrk.
11.Samfélagsstyrkur Kjósarhrepps - Sumarbústaðafélagið Valshamar í Eilífsdal
2610005
Sumarbústaðafélagið Valshamar í Eilífsdal sækir um styrk til að laga undirlag við rólur og endurnýja klifurkastala. Einnig til að mála leiktæki og laga geymsluskúr. Sótt er um 500.000 kr. styrk
Umsókn er synjað á þeim forsendum að verkefnið verður framkvæmt á árinu 2027. Sveitarstjórn hvetur umsækjanda til að sækja um samfélagsstyrk á nýju ári.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
12.Samfélagsstyrkur Kjósarhrepps - Sauðfjárræktarfélaginu í Kjós
2610006
Lögð er fram umsókn um samfélagsstyrk frá Sauðfjárræktarfélaginu í Kjós vegna árlegrar hrútasýningar.
Óskað er eftir 296.898 kr.
Óskað er eftir 296.898 kr.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita verkefninu 296.898 kr. styrk.
13.Samfélagsstyrkur Kjósarhrepps - Félag Frístundabyggðar Raðarhverfis
2610008
Félag Frístundabyggðar Raðarhverfis sækir um styrk vegna uppbyggingar á opnu leiksvæði í Raðarhverfi Kjós. Sótt er um styrk til kaupa á klifurgrind, bekk og malarefni.
Verkefnið hlaut áður styrk í maí 2026 að upphæð 200.000 kr.
Sótt er um styrk að upphæð 400.000 kr.
Verkefnið hlaut áður styrk í maí 2026 að upphæð 200.000 kr.
Sótt er um styrk að upphæð 400.000 kr.
Umsókn er synjað á þeim forsendum að styrkur var áður veittur vorið 2026. Sveitarstjórn hvetur umsækjanda um að senda inn umsókn um samfélagsstyrk á nýju ári.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
14.Samfélagsstyrkur Kjósarhrepps - Sei ehf.
2610007
Húsatalssmiðja í Kjós - Kjósin eins og hún stóð 1917.
Sei ehf. sækir um styrk vegna vinnusmiðju í Ásgarði laugardaginn 21. nóvember 2026. Tilgangur smiðjunnar er að áhugasamir Kjósverjar teikni sjálfir bæi sveitarinnar inn í kortið, eins og þeir stóðu 1917, og að minni heimafólks um hús og bæjarstæði sé skráð með nafni. Umsjón með vinnustofunni hafa þau Einar Hlér Einarsson, arkitekt MAA, Sei ehf., og Elín Ósk Hreiðarsdóttir, fornleifafræðingur hjá Fornleifastofnun Íslands. Styrkurinn greiðir kostnaðinn við smiðjuna. Þátttakendur greiða 5.000 kr. við skráningu. Sótt er um 500.000 kr. styrk.

Umsókn um styrk er synjað vegna forgangsröðunar og takmarkaðra fjármuna sveitarfélagsinns sem ætlaðir eru í samfélagsstyrki.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
15.Stofnun Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga
2610018
Boðað hefur verið til stofnunar Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga, að fyrirmynd sambærilegra hagsmunasamtaka sveitarfélaga. Markmið samtakanna yrði að skapa sameiginlegan vettvang sveitarfélaga þar sem landbúnaður er mikilvægur þáttur í atvinnulífi og samfélagsgerð. Samtökin myndu vinna að sameiginlegri hagsmunagæslu sveitarfélaganna í málefnum sem tengjast landbúnaði, svo sem skipulagsmálum, tekjustofnum, laga- og reglugerðarumhverfi og samskiptum við bændur og ríkisvaldið.
Stofnfundur verður haldinn miðvikudaginn 7. október 2026.
Stofnfundur verður haldinn miðvikudaginn 7. október 2026.
Sveitarstjórn fagnar hugmyndum um stofnun Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga og telur mikilvægt að sveitarfélög þar sem landbúnaður er veigamikill þáttur í atvinnulífi hafi sameiginlegan vettvang til hagsmunagæslu.
Sveitarstjórn samþykkir einnig samhljóða þátttöku Kjósarhrepps í samtökunum.
Sveitarstjórn samþykkir einnig samhljóða þátttöku Kjósarhrepps í samtökunum.
16.Tillaga að starfs- og fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar 2027
2610004
Lögð fram tillaga að starfs- og fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar til staðfestingar.
Samþykkt samhljóða.
17.Breyttur tími sveitarstjórnarfundar í nóvember.
2610020
Lagt er til að næsti reglulegi fundur sveitarstjórnar sem vera átti 12. nóvember 2026 verði færður fram um tvo daga og verði haldinn 10. nóvember 2026.
Samþykkt samhljóða.
18.Til umsagnar mál frá Umhverfis og samgöngunefnd Alþingis.
2610011
19.Fundargerð 96. fundar stjórnar Kjósarveitna
2610014
Fundargerð lögð fram til kynningar
20.Fundargerðir 632 og 633. funda stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfðuborgarsvæðinu.
2610015
Fundargerðir lagðar fram til kynningar
21.Fundargerð 1002. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
2610016
Fundargerð lögð fram til kynningar
22.Fundargerð 204. fundar Heilbrigðisnefndar Vesturlands
2610017
Fundargerð lögð fram til kynningar
23.Svæðisskipulagsnefnd fundur nr. 148
2610019
Fundargerð lögð fram til kynningar
Fundi slitið - kl. 18:00.