Fara í efni

Sveitarstjórn

323. fundur 10. nóvember 2026 kl. 16:00 - 18:00 stóra fundarsal í Ásgarði
Nefndarmenn
  • Jóhanna Hreinsdóttir (JH) oddviti
  • Sigurþór Ingi Sigurðsson (SIS) varaoddviti
  • Jón Þorgeir Sigurðsson (JÞS) nefndarmaður
  • Brynja Baldursdóttir varamaður
    Aðalmaður: Þóra Jónsdóttir (ÞJ)
  • Díana Þorsteinsdóttir nefndarmaður
Starfsmenn
  • Olgeir Olgeirsson ritari
Fundargerð ritaði: Olgeir Olgeirsson Verkefnastjóri á Skipulag- og byggingarsviði
Dagskrá

1.Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 37

2611002F

  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 37 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd telur að breytingin sé óveruleg í skilningi 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, enda felur hún ekki í sér breytingar á landnotkun, byggingarheimildum eða nýtingarhlutfalli lóða. Breytingin miðar fyrst og fremst að því að samræma afmörkun aðliggjandi deiliskipulagssvæða og tryggja að þau skarist ekki.

    Nefndin samþykkir að tillagan verði grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 43. gr., sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, fyrir þeim hagsmunaaðilum sem breytingin kann að varða og leggur til við sveitarstjórn að samþykkja þá málsmeðferð. Að lokinni grenndarkynningu verði málið tekið til endanlegrar afgreiðslu.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 37 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd tekur undir athugasemd HMS og bendir á að fyrir liggi tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Sandslundar 17, sem er tekin fyrir sem sérstakt mál á fundinum.

    Nefndin leggur til við sveitarstjórn að brugðist verði við athugasemd HMS með afgreiðslu framangreindrar deiliskipulagsbreytingar. Þegar breytingin hefur hlotið tilskilda málsmeðferð og tryggt hefur verið að afmörkun deiliskipulagssvæðanna skarist ekki, verði uppfærð gögn send HMS til yfirferðar svo unnt verði að ljúka gildistöku deiliskipulagsins.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 37 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd frestar málinu og leggur til að skipulag lóða verði skoðað nánar með tilliti til Aðalskipulags Kjósarhrepps. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 37 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd hefur farið yfir framkomnar umsagnir og leggur áherslu á að tekið verði mið af þeim við áframhaldandi vinnslu deiliskipulagstillögunnar. Sérstaklega verði hugað að útfærslu mannvirkja, öryggi og aðgengi gesta, vernd náttúru og fyrirkomulagi fráveitu og annarra innviða.

    Nefndin leggur til við sveitarstjórn að vinnu við gerð deiliskipulags verði haldið áfram á grundvelli fyrirliggjandi lýsingar og framkominna umsagna. Fullunnin deiliskipulagstillaga verði lögð fyrir nefndina til afgreiðslu áður en hún verður auglýst samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 37 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd telur að framkomin gögn uppfylli þau skilyrði sem sett voru í bókun nefndarinnar frá 3. september 2026 og að erindið sé í samræmi við gildandi aðalskipulag.

    Nefndin samþykkir erindið. Byggingarfulltrúa er falið að veita byggingarleyfi þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist, sbr. 2.3.8. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 37 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd bendir á að heildarstærð hússins er 73,5 m² og rúmast því vel innan 200 m² hámarksbyggingarmagns frístundalóða samkvæmt Aðalskipulagi Kjósarhrepps 2024-2036. Fyrirliggjandi staðsetning hússins (9,3 m frá lóðarmörkum) lá fyrir og var lögð til grundvallar við stofnun og samþykkt lóðarinnar í sveitarstjórn þann 7. febrúar 2024.

    Nefndin gerir ekki athugasemd við erindið og samþykkir byggingaráformin fyrir sitt leyti. Byggingarfulltrúa er falið að veita byggingarheimild þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist, sbr. 2.3.8. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 37 Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd Kjósarhrepps lýsir yfir þungum áhyggjum og megnri óánægju með slæmt ástand vega í sveitarfélaginu og framkvæmd viðhalds á vegum Vegagerðarinnar.

    Ítrekað hefur verið kvartað yfir langvarandi viðhaldsleysi á vegakerfi hreppsins. Síðastliðið sumar keyrði ástandið um þverbak þar sem djúpar holur og uppistandandi grjótklappir sköpuðu verulega hættu, en svör starfsmanna Vegagerðarinnar voru á þann veg að ekkert fjármagn væri til ráðstöfunar í viðhald.

    Það kemur nefndinni því verulega á óvart að ráðist hafi verið í ofaníburð um miðjan októbermánuð. Efnið sem borið var á vegina er afar leirborið og við ríkjandi rigningartíð, samhliða frostskel í undirlagi, hefur vegyfirborðið breyst í ófæra drulluleðju þar sem vatn nær ekki að síga niður. Verkinu var haldið áfram án þess að yfirborð væri jafnað með fullnægjandi hætti og er vegurinn enn grófjafnaður og stórvarasamur.

    Þetta ástand skapar mikla slysahættu nú í skammdeginu, auk þess sem eignatjón hefur þegar orðið, m.a. á Eyrarfjallsvegi þar sem ökutæki skemmdist verulega. Þá er algerlega óásættanlegt að leggja það á herðar bílstjóra skólabílsins að bera ábyrgð á öryggi barna við svo hættulegar aðstæður, en skólabíll ekur umrædda vegi tvisvar til fjórum sinnum á dag alla virka daga.

    Íbúar og aðrir vegfarendur í Kjósarhreppi greiða kílómetragjöld og önnur opinber álögur til jafns við aðra landsmenn og eiga réttmæta kröfu á lágmarksþjónustu og öruggum samgöngum.

    Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd krefst þess að Vegagerðin:

    1.
    Grípi þegar í stað til bráðaaðgerða til að tryggja umferðaröryggi og jafna yfirborð vega þar sem ofaníburður fór fram.

    2.
    Skipuleggi og vinni reglubundið viðhald á vor- og sumarmánuðum framvegis, en hefji ekki vanhugsaðar aðgerðir að haustlagi við óhagstæð veðurskilyrði.

    Nefndin felur sveitarstjóra að koma bókun þessari tafarlaust á framfæri við Vegagerðina og innviðaráðuneytið, auk þess sem hún verði lögð fyrir sveitarstjórn á næsta fundi.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 37
  • Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd - 37

2.Viðauki 2 við fjárhagsáætlun Kjósarhrepps vegna breytinga á bókhaldsreglugerð

2611007

Lögð fram tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun Kjósarhrepps fyrir árið 2026. Viðaukinn felur í sér tilfærslur fjárheimilda milli deilda og málaflokka til samræmis við breytingar á reglugerð um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða viðaukann eins og hann liggur fyrir. Viðaukinn hefur ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu sveitarfélagsins.

3.Fjárhagsáætlun Kjósarhrepps 2027-2031

2606026

Lögð er fram til fyrri umræðu fjárhagsáætlun Kjósarhrepps fyrir árin 2027?2030.
Fjárhagsáætlun vísað til síðari umræðu.

4.Gjaldskrá um meðhöndlun úrgangs í Kjósarhreppi 2027

2611009

Lögð er fram til staðfestingar gjaldskrá um meðhöndlun úrgangs í Kjósarhreppi.
Sveitarstjórn staðfestir gjaldskrána og felur sveitarstjóra að auglýsa hana í B-hluta Stjórnartíðinda. Samþykkt samhljóða.

5.Gjaldskrá fyrir hreinsun fráveitumannvirkja í Kjósarhreppi 2027

2611008

Lögð er fram til staðfestingar gjaldskrá fyrir hreinsun fráveitumannvirkja í Kjósarhreppi.
Sveitarstjórn staðfestir gjaldskrána og felur sveitarstjóra að auglýsa hana í B-hluta Stjórnartíðinda. Samþykkt samhljóða.

6.Umsókn um greiðslur vegna námsvistar utan lögheimilis-Grunnskólar

2611012

Lögð er fram umsókn um greiðslur námsvistar í grunnskóla fyrir utan lögheimilissveitarfélag.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða umsóknina.

7.Umsókn um greiðslur vegna námsvistar utan lögheimilis-Leikskólar

2611011

Lögð er fram umsókn um greiðslur námsvistar í leikskóla fyrir utan lögheimilissveitarfélag.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða umsóknina.

8.Umsókn um leyfi til reksturs Gististaðir í Flokkur II - B Stærra gistiheimili - Stóra Skál

2611006

Lögð er fram umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu um umsókn Eyjadals ehf. um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II-B stærra gistiheimilis að Stóru-Skál í Kjós.
Samkvæmt aðalskipulagi Kjósarhrepps 2024?2036 er ekki heimilt að vera með rekstur gistiheimilis í flokki II á íbúðarhúsalóð. Sveitarstjórn bendir einnig á að byggingarleyfi hefur ekki verið gefið út né öryggis og lokaúttekt farið fram. Sveitarstjórn hafnar því beiðninni samhljóða.

9.Hnitsetning Hvalfjarðareyri - Merkjalýsing

2609014

Lögð er fram tillaga að gerð merkjalýsingar í samræmi við breytingu á lögum um skráningu, merki og mat fasteigna nr. 6/2001 og reglugerð um merki fasteigna nr. 160/2024. Um er að ræða afmörkun skika Hvalfjarðareyrar, ásamt eyjum og skerjum sem eru í eigu Kjósarhrepps og Eyrar. Málið er umfangsmikið þar sem þörf er á að leiðrétta skráningu og taka út svokallaða „drauga“ í fasteignaskrá. Mikilvægt er að vinna málið í samvinnu við sýslumann og HMS áður en unnt verður að ljúka merkjalýsingu.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fara í gerð merkjalýsingar á Hvalfjarðareyri.

10.Kerfisuppfærsla HMS - ONE

2607001

Málið var áður tekið fyrir á 321. fundi sveitarstjórnar þann 10. september síðastliðinn þar sem lagt var fram minnisblað um fyrirhugaða tengingu Kjósarhrepps við Strauminn (stafrænt upplýsingakerfi hins opinbera) og innleiðingu á X-Road öryggisþjóni.



Fyrir liggja tilboð frá tveimur þjónustuaðilum:


ORIGO: Býður samhýsta gámalausn á OpenShift sem spegluð er milli tveggja tölvusala. Tilboðið gerir ráð fyrir greiðslu fyrir þrjú umhverfi (þróunar-, prófunar- og raunumhverfi) samkvæmt upplýsingum frá söluaðila. Stofnkostnaður er tilgreindur 78.000 kr. og mánaðarlegt rekstrargjald 53.500 kr. án virðisaukaskatts (642.000 kr. á ári).


OK: Býður séruppsetta lausn (SSaaS) á sýndarvél. Í skýringum frá OK hefur komið fram að Kjósarhreppi nægi eitt raunumhverfi til þess að hefja notkun og tengjast viðeigandi þjónustum. Stofnkostnaður nemur 244.080 kr. og mánaðarlegt rekstrargjald 33.000 kr. án virðisaukaskatts (396.000 kr. á ári). Innifalin í stofnkostnaði OK er vinna við skilríkjaumsóknir (CSR) og innsetningu skilríkja.

Með vísan til umfjöllunar á 321. fundi sveitarstjórnar þann 10. september síðastliðinn og framlagðs samanburðar á tilboðum samþykkir sveitarstjórn Kjósarhrepps að gengið verði til samninga við OK um hýsingu og rekstur X-Road öryggisþjóns fyrir sveitarfélagið á grundvelli tilboðs í eitt raunumhverfi. Sveitarstjóra er falið að ganga frá samningi við OK, þar sem meðal annars verði tryggð viðunandi ákvæði um þjónustustig, rekstraröryggi, afritun og fyrirkomulag vegna skilríkja og framtíðarstækkunar.

11.Beiðni um fjárstuðning frá Samtökum um karlaathvarf

2611002

Lögð er fram til umfjöllunar styrkbeiðni frá Samtökum um karlaathvarf þar sem óskað er eftir stuðningi við nýjan hjálparsíma samtakanna og þá aðstoð sem samtökin veita körlum í erfiðum aðstæðum.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita 50.000 kr. til Samtaka um Karlaathvarf.

12.Beiðni um fjárstuðning frá Stígamótum

2611003

Lögð er fram til umfjöllunar styrkbeiðni frá Stígamótum þar sem sótt er um fjárstuðning og samstarf um rekstur Stígamóta. Samtökin sinna stuðningi við brotaþola kynferðisofbeldis.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita 50.000 kr. til Stígamóta.

13.Beiðni um fjárstuðning frá Kvennaathvarfinu

2611004

Lögð er fram til umfjöllunar styrkbeiðni frá Samtökum um Kvennaathvarf um rekstrarstyrk að fjárhæð kr. 200.000 til að geta veitt konum og börnum skjól sem flýja þurfa heimili sín sökum ofbeldis.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita 50.000 kr. til Samtaka um Kvennaathvarf.

14.Fyrirhuguð niðurfelling Grímstaðavegar af vegaskrá

2611016

Lögð er fram tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Grímstaðavegar (4877-01) af vegaskrá.

15.Fundargerð 97. fundar stjórnar Kjósarveitna

16.Fundargerðir 1003 og 1004. funda stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

17.Fundargerð 634. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu

2610029

18.Fundargerð 635. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu

2610040

19.Fundargerð 636. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu

2611015

Fundi slitið - kl. 18:00.