Fara í efni

Kjósarhreppur auglýsir skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 - Deiliskipulag Hvítaness, Kjósarhreppi

Deila frétt:

Kjósarhreppur auglýsir skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

Deiliskipulag Hvítaness, Kjósarhreppi

Sveitarstjórn Kjósarhrepps samþykkt þann 30. mars 2022 að auglýsa deiliskipulagstillögu á neðri hluta jarðarinnar Hvítanes í Kjósarhreppi, dags. 2.3.2022, í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að sækja um undanþágu frá grein 5.3.2.14. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 varðandi fjarlægðar mannvirkja nær vötnum ám eða sjó en 50 m.

Um er að ræða skilgreiningu á nýjum byggingarlóðum nyrst á Hvítanesi, alls um 5,0 ha að stærð. Gert er ráð fyrir íbúðarhúsi, frístundahúsum, gestahúsum, bryggjuhúsi ásamt fjölnotahúsum ( hlaða, veisluhús, gróðurhús, skemmu eða verkstæði).

Deiliskipulagstillagan verður til sýnis í anddyri hreppsskrifstofu  Kjósarhrepps í Ásgarði frá og með 6. apríl 2022 til og með 18. maí 2022.  Tillögurnar verða jafnframt birtar á heimasíðu Kjósarhrepps, kjos.is.    

Athugasemdir eða ábendingar vegna deiliskipulagstillögunnar skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 18. maí 2022.  Póstlagðar athugasemdir berist á skrifstofu Kjósarhrepps að Ásgarði Kjós, 276 Mosfellsbæ, eða með tölvupósti á netfangið  skipulag@kjos.is

 

Kjósarhreppur  5.4. 2022

Skipulags- og byggingarfulltrúi Kjósarhrepps