Skipulagsauglýsing
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að eftirfarandi deiliskipulagi:
- Deiliskipulag íbúðabyggðar í landi Álfakots L224886
Tillagan nær til 7,9 ha svæðis og gerir ráð fyrir sex nýjum íbúðarlóðum. Austanmegin á landinu er nú þegar íbúðarhús og hlaða sem tilheyra upprunalandi og verða á lóð númer 1. Sjá nánar
Samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru kynntar eftirfarandi breytingar á deiliskipulögum
- Deiliskipulag Eyjar 2
Breytingin felur í sér stækkun lóðarinnar Eyjatún 27, ásamt stækkun byggingarreits. Það land sem lagt er til við lóðina kemur úr jörðinni Eyjum I. Núverandi stærð lóðarinnar er 1.512 m² en samkvæmt fyrirliggjandi tillögu verður hún 15.218,9 m². Sjá nánar
- Deiliskipulag í landi Eyja svæði A
Breytingin fjallar um sameiningu lóða Eyjavíkur 6, 12 og 16 Skráð stærð Eyjavíkur 6 er 2.300 m², Eyjavík 12 er skráð 1.400 m², en engin stærð er skráð fyrir Eyjavík 16. Samkvæmt fyrirliggjandi hnitsetningu verður sameinuð lóð 5.767,9 m². Sjá nánar
- Deiliskipulag frístundabyggðar í landi Brekkna
Í breytingunni felst að skilgreindur er nýr byggingarreitur fyrir aukahús (bílskúr) á lóð nr. 8. Jafnframt er hámarksbyggingarmagn á lóðinni aukið úr 69 m² í 140 m². Sjá nánar
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu Kjósarhrepps, Ásgarði, á skrifstofutíma sveitarfélagsins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.kjos.is og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar skipulagsgatt.is/.
Mál 1. er í auglýsingu frá 11. maí 2026 með athugasemdarfresti til og með 22. júní 2026.
Mál 2-4 eru í kynningu frá 11. maí 2026 með athugasemdarfresti til og með 8. maí 2026.
Virðingarfyllst,
Skipulagsfulltrúi Kjósarhrepps